Næsta stopp er gagnvirk sýning þar sem nýju samgönguneti Borgarlínu, Strætó, hjólastíga og deililausna eru gerð skil á áhugaverðan hátt. Sýningin er hluti af HönnunarMars hátíðinni í ár og stendur yfir í Ráðhúsi Reykjavíkur til 24.júní. Sýningin hefur nú þegar vakið mikla athygli.
„Ímyndaðu þér nýtt samgöngunet,“ segir í kynningu HönnunarMars á verkefninu.
Sýnt er hvernig Strætó og Borgarlína munu spila saman og hvaða áhrif sú uppbygging mun hafa á kerfi almenningssamgangna á svæðinu. Á sýningunni er upplýsingum um framtíðarskipan í samgöngum á höfuðborgarsvæðinu miðlað. Þetta er fjölskylduvæn gagnvirk upplifunarsýning og gæti hentað fólki á öllum aldri.

„Borgarlínan er notendavænt og öruggt samgöngukerfi almenningsvagna sem mun tengja allt höfuðborgarsvæðið saman með hröðum og tíðum ferðum. Samhliða verður þróað nýtt leiðanet almenningssamgangna á svæðinu sem mun tengjast Borgarlínu. Borgarlínuvagnarnir verða drifnir innlendum vistvænum orkugjöfum og munu því styðja við þróun höfuðborgarsvæðisins að kolefnishlutlausu borgarsamfélagi og bættri lýðheilsu,“ segir um sýninguna.
Borgarlínustöðvarnar verða lykilpunktar nýja samgöngunetsins og í kringum þær mun skapast aðstæður fyrir margvíslega verslun og þjónustu. Þar verður góð aðstaða fyrir hjól og hverskonar deilifarartæki sem auðvelda fólki síðasta spölinn að Borgarlínustöðinni.

HönnunarMars 2020 átti að fara fram í lok marsmánaðar eins og undanfarin ellefu ár, en vegna Covid-19 faraldursins var hátíðinni frestað til 24.-28. júní. Á hátíðinni leiðir framsækin hönnun og nýjungar saman sýnendur og gesti.
HönnunarMars fer fram með breyttu sniði í ár en tugir hönnuða taka þátt og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Nánar verður fjallað um hátíðina hér á Vísi næstu daga. Einhverjir viðburðir eru opnir lengur en þessa fimm daga og nánar má lesa um dagskránna á vef HönnunarMars.