28 ára Dani verður í framlínusveit Barcelona fram á vor og er ætlað að fylla í skörð stjarna eins og Luis Suárez og Ousmane Dembélé sem eru meiddir.
Þessi kaup Barcelona á Martin Braithwaite hafa vakið mikla athygli og ekki síst í Danmörku.
Danir hafa vissulega átt leikmenn í Barcelona en á þeim tíma voru Allan Simonsen og Michael Laudrup súperstjörnur í evrópska fótboltanum. Það vissu ekki margir mikið um Martin Braithwaite.
„Ég vil bara óska honum til hamingju. Nýttu tækifærið. Hann hefur unnið í fótboltalottóinu með því að komast að hjá þessum frábæra klúbb,“ sagði Michael Laudrup við dönsku sjónvarpsstöðina TV3+. Verdens Gang sagði frá.
Það gera sér allir grein fyrir því að Martin Braithwaite fær ekki langan tíma hjá Barcelona því félagið mun endurheimta Luis Suárez og Ousmane Dembélé úr meiðslum og jafnvel kaupa eitt stykki Neymar í sumar.
Laudrup om den nye Barca-angriperen: – Han har vunnet i lotteriet https://t.co/cIhu4zxXF0
— VG Sporten (@vgsporten) February 21, 2020
„Ef hann stendur sig vel þá kemst hann að hjá liði á næsta tímabili, kannski ekki liði á sama stalli og Barcelona, en liði sem er um miðja deild á Spáni. Þar gæti hann fengið góðan samning sem væri frábært fyrir hann,“ sagði Laudrup.
Martin Braithwaite verður fimmti Daninn til að spila fyrir Barcelona en hinir eru Allan Simonsen (1979-1983), Michael Laudrup (1989-1994), Ronnie Ekelund (1992-1994) og Thomas Christiansen (1992-1994).
Ronnie Ekelund náði bara að spila einn leik fyrir Barcelona sem lánaði hann í fjórgang og Thomas Christiansen spilaði aldrei fyrir spænska félagið þrátt fyrir að vera leikmaður þess í tvö ár. Þeir voru hjá Barcelona á sama tíma og Michael Laudrup.
Michael Laudrup átti flott ár hjá Barcelona, skoraði 40 mörk í 167 leikjum fyrir félagið og vann níu titla þar á meðal spænsku deildina fjórum sinnum og Evrópukeppni meistaraliða 1992. Laudrup fór frá Barcelona til Real Madrid.
Allan Simonsen skoraði 31 mark í 98 leikjum með Barcelona en náði ekki að verða spænskur meistari með félaginu.