Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair Group en bókfært virði hlutarins er 1,7 milljónir króna sem samsvarar 13 þúsund Bandaríkjadölum. Í kjölfar kaupanna mun hótelfélagið hefja vinnu við breytingu á nafni og vörumerki hótelanna og hætta notkun Icelandair vörumerkisins þegar fram líða stundir.
Stjórn Icelandair Group skrifaði í júlí 2019 undir kaupsamning við Berjaya Corporation Berhad um kaup á 75% hlut félagsins í Icelandair Hotels. Berjaya er stofnað af malasíska auðkýfingnum Vincent Tan. Gengið var frá kaupunum í apríl á síðasta ári.
Vel undir þetta búin
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, segir söluna á eftirstandandi hlut félagsins vera í takt við núverandi stefnu þess um að einbeita sér að flugrekstri og tengdri starfsemi.
„Ég hef mikla trú á því að Ísland verði áfram eftirsóttur áfangastaður þegar faraldrinum lýkur og að Icelandair Hotels haldi áfram að vera í lykilhlutverki í uppbyggingu ferðaþjónustunnar hér á landi á næstu árum. Ég vil þakka Berjaya fyrir gott samstarf og óska þeim og Icelandair Hotels alls hins besta í framtíðinni,” segir Bogi í tilkynningu.
Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandair Hotels, segir að stjórnendur keðjunnar séu vel undir þetta búin og tilbúin að takast á við nýja tíma.
„Við búum að góðri þekkingu og reynslu af bæði endurnýjun eldri vörumerkja sem og því að innleiða ný hótelvörumerki inn í okkar rekstur, og sú reynsla mun án efa nýtast okkur vel í þeim verkefnum sem framundan eru.“
„Við höfum nýtt tímann vel undanfarið í endurskipulagningu okkar reksturs sem og til undirbúnings á þeirri vegferð sem lá fyrir að væri framundan. Við hlökkum til aukins samstarfs við nýja eigendur í Malasíu, og erum þakklát öllu því góða fólki sem við höfum unnið með að uppbyggingu ferðaþjónustu hjá Icelandair Group til fjölda ára. Við ætlum áfram að vera leiðandi í hótelrekstri á Íslandi, og það verður spennandi að kynna þær nýjungar sem endurmörkun rekstrarins mun innibera,“ segir Magnea í tilkynningu frá Icelandair Group.
Icelandair Group tapaði 51 milljarði króna árið 2020. Heimsfaraldur Covid-19 og ferðatakmarkanir höfðu mikil áhrif á félagið og dróst sætaframboð saman um 81 prósent á árinu.
Fréttin verður uppfærð.