Þórsarar héldu sigurgöngu sinni áfram í Domino´s deild karla í körfubolta í gær með öruggum sigri á botnliði Hauka. Það var hins vegar skortur á framlagi íslenskra leikmanna Þórsliðsins sem var ansi sláandi í þessum leik.
Sigur Þórsarar er vissulega enn athyglisverðari fyrir þá staðreynd að liðið lék án Ingva Þórs Guðmundssonar í leiknum en Ingvi hafði skoraði 22 stig í sigrinum á Stjörnunni á föstudagskvöldið.
Þórsarar segja frá því á heimasíðu sinni að Ingvi hafi fengið þungt höfuðhögg í leiknum gegn Stjörnunni og því var tekin sú ákvörðun að gefa honum frí og tíma til að jafna sig fullkomlega áður en hann hefur leik á ný.
Ingvi Þór skoraði öll íslensku stig Þórsliðsins í sigrinum í Garðabænum og öll íslensku stigin í sigri á Grindavík fyrir norðan í leiknum á undan. Enginn annar íslenskur leikmaður Þórsliðsins hafði skorað í tveimur síðustu leikjum.
Fyrirliðinn Ragnar Ágústsson skoraði því vissulega meira í gær en í þessum tveimur leikjum á undan en stigin hans þrjú voru einu íslensku stigin hjá Þórsurum í leiknum á móti Haukum.
Fimm erlendir leikmenn Þórsliðsins skoruðu 97 af 100 stigum (97%) í leiknum á móti Haukum, tóku 36 af 38 fráköstum (95%, +7 liðsfráköst), gáfu 29 af 30 stoðsendingum (97%) og fengu 126 af 128 framlagsstigum liðsins (98%).
Þetta var annars frábær ferð hjá Þórsurum suður en þeir unnu jafnmarga útileiki á þessum þremur dögum og þeir höfðu unnið á 1158 dögum þar á undan því Þórsliðið tapaði 14 af 16 útileikjum sínum í Domino´s deildinni frá 8. janúar 2018 til 11. mars 2021.
Tölfræði Þórsliðsins í sigrinum á Haumum:
- Stig
- Erlendir leikmenn 97
- Íslenskir leikmenn 3
- Fráköst
- Erlendir leikmenn 36
- Íslenskir leikmenn 2
- Stoðsendingar
- Erlendir leikmenn 29
- Íslenskir leikmenn 1
- Spilatími (Mínútur:sekúndur)
- Erlendir leikmenn 178:47
- Íslenskir leikmenn 21:13
-
Skot á körfuna
-
Erlendir leikmenn 62
-
Íslenskir leikmenn 4
- Framlag
- Erlendir leikmenn 126
- Íslenskir leikmenn 2