Thomas varð í janúar uppvís að því að nota hómófóbískt blótsyrði þegar hann klúðraði pútti á móti á PGA-mótaröðinni. Það heyrðist greinilega í sjónvarpsútsendingu og Thomas baðst afsökunar í viðtali eftir mótið. Einn af hans helstu bakhjörlum, Ralph Lauren, sleit samningi sínum við Thomas í kjölfarið.
Í febrúar missti Thomas svo afa sinn og fyrirmynd úr golfinu, Paul Thomas. Justin er líka náinn félagi Tiger Woods sem í sama mánuði lenti í mjög alvarlegu umferðarslysi en er á batavegi.
„Þetta hafa verið ömurlegir mánuðir,“ sagði Thomas sem lék um helgina eftir að hafa naumlega komist í gegnum niðurskurðinn á The Players. Hann lék á 64 höggum á laugardag og svo á 68 höggum í gær þegar hann skaust fram úr Lee Westwood.
„Ég hef átt við hluti í mínu lífi sem ég hélt að myndu aldrei gerast. Það var skelfilegt að missa afa. Það var skelfilegt að spila golfhring eftir það [Thomas kláraði keppni á Phoenix Open eftir að afi hans lést] og gekk ekki vel. Þetta tók mjög mikið á mig andlega,“ sagði Thomas við ESPN.
Byrjaði illa en fór svo á flug
Hann hafði tekið tæplega mánaðar hlé eftir blótsyrðið og var að keppa á sínu fyrsta móti eftir það þegar afi hans lést.
„Ef að ég vildi koma á þessi mót og eiga möguleika á að vinna þá þurfti ég að herða upp hugann og jafna mig. Ef ég vildi sökkva mér í sjálfsvorkunn þá var engin ástæða til að mæta. Ég get verið heima þangað til að mér finnst ég tilbúinn. Mér fannst ég vera á nægilega góðum stað andlega til að geta spilað. Ég spilaði bara ekki nógu vel, og þegar það gekk illa þá vatt það upp á sig,“ sagði Thomas.
Hann byrjaði einmitt illa á The Players og var fyrir neðan niðurskurðarlínuna eftir 27 holur en fékk fjóra fugla á seinni níu holunum á föstudaginn. Þannig komst hann áfram og átti svo magnaðan hring á laugardag sem lagði grunninn að sigrinum.
Mike Thomas, faðir Justins og sonur Pauls, var að vonum stoltur af stráknum: „Það eru margir sem að glíma við mun stærri vandamál en við en þetta var í raun í fyrsta sinn sem einhver af hans nánasta fólki deyr og svo var fleira sem að hafði áhrif á hann. Þetta var mikil andleg glíma fyrir hann,“ sagði Mike Thomas við ESPN.

Öll stærstu golfmótin eru á Stöð 2 Golf en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Stöð 2 Golf kostar 3.990 krónur á mánuði en er einnig hluti af Sportpakkanum. Helgarpassa að Stöð 2 Golf má kaupa á kerfum Vodafone.