En hvað kemur til að nú er verið að kalla eftir árangurssögum frá íslenskum konum?
Upphafleg hugmynd árið 1936
Bókin Vinsældir og Áhrif kom fyrst út árið 1936 og jafn ótrúlega og það hljómar, nýtur hún enn mikilla vinsælda.
„Í bókinni er farið yfir 30 reglur í mannlegum samskiptum sem nýtast vel til að ná árangri. Þessar reglur byggja á frásögnum fólks í viðskiptalífinu og stjórnmálum sem segja frá því hvernig fólk hefur náð miklum árangri með því að vera meðvitað um samskipti sín og framkomu við annað fólk,“ segir Unnur og bætir við: „Og náð með þessu að byggja upp traust, afla samvinnu og veita öðrum innblástur.“
Höfundur bókarinnar er Dale Carnegie sem frá árinu 1912 hafði haldið námskeið víðs vegar í Bandaríkjunum til að þjálfa fólk og efla í samskiptafærni og fleiru.
Eitt sinn, sat útgefandi námskeið Dale og heyrði þar frásagnir fólks sem var að æfa sig í að halda ræður.
Þær frásagnir innihéldu oftar en ekki dæmisögur um hvernig fólk nær árangri í viðskiptum með því að vera góð í samskiptum,“
segir Unnur.
Útgefandanum datt þá í hug að Dale myndi gefa út bók og styðjast þá við frásagnir fólks sem höfðu nýtt sér reglurnar sem hann kenndi og náð árangri í viðskiptalífinu og í stjórnmálum.
Úr varð bókin Vinsældir og áhrif, sem á frummálinu heitir How to win Friends and Influence people.
Sló strax í gegn
Að sögn Unnar sló bókin strax í gegn árið 1936 og seldist þá í áður óþekktum upplögum.

Þó var hún gagnrýnd fyrir að vera einföld og grunn.
„Kannski er það einmitt ástæðan fyrir velgengninni. Hún er svo aðgengileg og reglurnar einfaldar fyrir fólk að beita í sínu lífi og hún fjallar um mannlega hegðun sem fólk getur samsvarað sig við. Þegar maður les reglurnar kemst maður að því að þær eru í raun allar kunnuglegar og eitthvað sem maður veit innst inni að skilar manni árangri. Bókin er því frábær áminning um að nota reglurnar og sögurnar sanna svo ágætið,“ segir Unnur.
Þá segir Unnur að á námskeiðum Dale Carnegie á Íslandi sé enn verið að styðjast við reglurnar úr bókinni.
„Þátttakendur eru almennt sammála um að þó svo að bókin sé gefin út 1936 þá standist reglurnar tímans tönn og eigi alveg jafn vel við núna og þær gerðu þá. Það má segja að þessi bók sé fyrsta sjálfshjálparbókin og aðrar bækur sem hafa komið út í kjölfarið séu að einhverju leiti að feta í fótspor þessarar,“ segir Unnur.
En þótt bókin njóti enn mikilla vinsælda, er þó einn hængur á.
Það vantar árangurssögur frá konum!
Dóttir Dale, Donna Carnegie, vinnur því nú að endurútgáfu bókarinnar. Af því tilefni, leitaði hún til Dale Carnegie á Íslandi, enda hafa námskeið Dale Carnegie verið í boði fyrir Íslendinga frá árinu 1965 og konur þar alltaf verið í miklum meirihluta þátttakenda.
„Bókin kom út árið 1936 og því augljóst að margar sögurnar bera einkenni þess tíma. Þannig eru til dæmis ekki margar sögur þar sem konur eru í leiðtogahlutverkinu og því langar Donnu að breyta,“ segir Unnur.
Íslenskar árangurssögur oft magnaðar
Unnur segir það vel valið af Donnu að leita til íslenskra kvenna. Ekki aðeins vegna þess að þær hafi verið í meirihluta þátttakenda Dale Carnegie námskeiða síðustu áratuga, heldur hafi þær margar frá góðum sögum að segja.
Við þjálfararnir heyrum allar frásagnir þátttakenda og er stundum orðavant yfir því hversu ótrúleg áhrif mannleg hegðun getur haft á árangur, hvort sem það er í starfi eða einkalífi,“
segir Unnur og nefnir dæmi: „Ég man eftir frásögnum þar sem fólk hafði veruleg áhrif á menningu vinnustaðarins, starfsánægju og árangur heildarinna með því að skoða eigin samskiptahegðun og tileinka sér reglurnar í bókinni.“
Unnur hvetur þessar konur nú til að hafa samband við Dale Carnegie á Íslandi og deila sínum sögum. Hægt er að senda henni póst á netfangið unnurm@dale.is.
Þessum sögum verður síðan komið á framfæri við Donnu Carnegie.
„Það væri auðvitað alveg meiriháttar gaman að hafa frásögn íslenskrar konu prýða síðurnar á Vinsældir og áhrif,“ segir Unnur.