Fjöldi áhrifavalda varð fyrir barðinu á hakkaranum, þar á meðal Kristín Pétursdóttir, Sunneva Einarsdóttir, Ástrós Traustadóttir, Dóra Júlía og strákarnir í Æði svo fátt eitt sé nefnt.
Hakkarinn, sem kallar sig kingsanchezx á Instagram hefur hótað fleirum en þeim, til dæmis kynlífstækjaversluninni Lovísu, Jóni Jónssyni tónlistarmanni og Katrínu Jakobsdóttur ef marka má Instagram-færslur hakkarans.
Netþrjóturinn hefur krafist ýmislegs af þeim sem hann hefur beint spjótum sínum að og sagði Jón Þór Ágústsson, einn eigenda kynlífstækjaverslunarinnar Lovísu, í samtali við fréttastofu að hann hafi krafist upplýsinga um kaup viðskiptavina, ellegar hann myndi loka Instagram-aðgangi verslunarinnar.
„Með svona verslun er þetta aðeins viðkvæmara en ef þú ert að kaupa þér varahluti í bílinn þinn og trúnaður við viðskiptavini er eitthvað sem ég tek mjög alvarlega. Og ég held að hann geri sér alveg grein fyrir því, þannig að hann ræðst á veika hlekki,“ segir Jón Þór. „Ég veit svo ekki hvað hann hefði gert við þær upplýsingar hefði hann náð að hræða mann í það.“
Kristín Pétursdóttir, leikkona og einn áhrifavaldanna sem varð fyrir barðinu á þrjótnum, sagði í samtali við Vísi í fyrradag að það hafi verið áfall að glata dýrmætu efni á þennan máta.
„Við erum mörg sem vinnum á Instagram hjá alls konar fyrirtækjum og mikið tekjutap fólgið í því en maður verður bara að vona það besta.“
Ekki hefur tekist að ná tali af Birgittu Líf frá því að reikningurinn hennar opnaði aftur.
Fréttin hefur verið uppfærð eftir að Instagram-reikningar Binna Glee og Bassa Maraj opnuðu einnig.