Í viðtalinu ræðir Thunberg um umhverfismál og það hvernig tískuheimurinn hefur slæm áhrif á loftlagsmálin. Sænski loftslagsaðgerðasinninn segist vera mjög mikið á móti fjöldaframleiðslu á tískufatnaði og hefur sjálf ekki keypt sér flík í þrjú ár.
„Ég keypti mér síðast eitthvað fyrir þremur árum síðan og það var notað. Ég fæ bara lánað frá fólki sem ég þekki,“ segir Thunberg meðal annars í viðtalinu.
Vogue myndirnar af Thunberg og Streng tók listræna dúóið Iris og Mattias Alexandrov Klum en á Instagram síðu Vogue Scandinavia má einnig finna myndband frá tökustað.