Já fólk er einfaldlega að misskilja skilaboðin frá okkur og mjög langt frá því að upplifa þau á sama hátt og við trúum sjálf.
Í þessu er svo sem hægt að benda á nokkur einföld ráð til að draga úr líkum á misskilningi.
- Til dæmis að skrifa ekki í HÁSTÖFUM.
- Sleppa eða nota af varkárni upphrópunarmerkið!!!
- Reyna EKKI að vera fyndin.
- Og sýna alltaf kurteisi.
Það er reyndar auðvelt fyrir okkur að máta okkur við það hvernig við upplifum skilaboð.
Sem dæmi má nefna hversu ólíka upplifun eftirfarandi ávarp í upphafi tölvupósts gefur:
Sæl Rakel
Sælar mín kæra
Sæl
Hæ
Hæ Rakel
Hæ hæ
Hæ!
Sumir kjósa reyndar að vera alltaf á formlegum nótum, sbr. Sæl Rakel.
Það á sérstaklega við þá sem eldri eru.
Stundum eiga líka formlegheitin betur við, til dæmis vegna vinnu, stöðu okkar, innihald skilaboðanna eða þegar að við tölum við viðskiptavini.
Eitt af því sem þó hefur riðlað nokkuð formlegheitunum í rafrænum samskiptum er notkun tjámerkja (e. emjoi).
Rannsóknir hafa sýnt að það er aðallega fólk sem er 45 ára og eldri sem finnst þau ekki við hæfi.
Ungt fólk metur hins vegar kostina mjög og notar tjámerki í miklum mæli.
Í grein Entrepreneur Europe eru fjögur atriði nefnd sérstaklega til rökstuðnings um það hvers vegna notkun tjámerkja í skilaboðum er mjög jákvætt:
1. Í dag þekkja allir tjámerki
Við þekkjum þau betur, kunnum betur að túlka þau og erum með fleiri valmöguleika en var í fyrstu. Tjámerkin eru alþjóðleg og þau notuð af um 13 milljón manns daglega samkvæmt Wall Street Journal.
2. Tjámerkin sporna við misskilning
Niðurstöður rannsókna gefa vísbendingar um að tjámerkin séu að hjálpa okkur við að upplifa skilaboð á réttan hátt.
Sem dæmi má nefna stuttu skilaboðin: Ok.
Mikill munur er á því hvernig við upplifum:
Ok
Ok 😊
Ok!
😊
OK
3. Hafa góð áhrif á sambönd
Niðurstöður rannsókna sýna að 81% þeirra sem nota tjámerki telja fólk vinalegra ef það notar tjámerki í skilaboðum. Þá segjast 94% þeirra sem nota tjámerki að tjámerkin hjálpi þeim við samskipti; liðki fyrir þeim og geri þau jákvæðari.
78% þeirra sem nota tjámerki telja meiri líkur á að viðtakendur upplifi þá á jákvæðan hátt, 63% telja að viðtakendur treysti þeim betur og 74% telja að viðtakendur upplifi skilaboðin frá þeim sem jákvæð skilaboð eða jákvæðar fréttir.
4. Tjámerkin minnka kynslóðabilin
Fólk sem er 45 ára og eldri, upplifir tjámerkin á mun neikvæðari hátt en yngra fólk. Sem dæmi má nefna að niðurstöður rannsókna sýna að aðeins 15% fólks sem er 45 ára og eldri telja tjámerkin bæta samskipti á vinnustað, 29% þeirra telja tjámerkin virka ófaglega þegar notuð í starfi og 22% lætur tjámerkin fara í taugarnar á sér eða telur notendur þeirra hvorki einlæg né nógu kappsamt fólk.
Allt ofangreint er þveröfugt við það hvernig yngra fólk upplifir notkun tjámerkja. Þar hafa rannsóknir sýnt að aðeins 17% ungs fólks telja notkun tjámerkja ófagleg þegar notuð í starfi.
Takk fyrir lesturinn 😊