Þegar aðeins 38 og hálf sekúnda voru til leiksloka steig Bueckers illa niður og sneri upp á bæði hné og ökkla eins og sjá má í myndbandinu hér að neðan. Meiðslin líta ekki vel út þó enn sé alls óvíst hversu illa meidd hin tvítuga Bueckers er.
Paige Bueckers walked off the court after an injury on this play pic.twitter.com/iXh0iXPsax
— FOX College Hoops (@CBBonFOX) December 5, 2021
Það segir þó sitt að hún var tárvot er hún var studd af velli með aðstoð liðsfélaga sinna.
„Vonandi fáum við góðar fréttir á morgun,“ sagði þjálfari UConn, Geno Auriemma, um meiðsli stjörnuleikmanns síns. Samkvæmt fjölmiðlum ytra eru ekki miklar líkur á því en flestir óttast að krossbönd í hné séu sködduð.
UConn var 18 stigum yfir þegar Bueckers meiddist en hún hafði spilað allan leikinn fram að meiðslunum. Hún endaði með 22 stig, fjórar stoðsendingar og fjögur fráköst í 73-54 sigri UConn.
Hin tvítuga Bueckers er þrátt fyrir ungan aldur með sína eigin Wikipedia-síðu sem segir sitt um stöðu hennar í körfuboltaheiminum.
Paige Bueckers was carried off the court after an apparent leg injury.
— Bleacher Report (@BleacherReport) December 5, 2021
Hope she's OK pic.twitter.com/CE5I1azDKn
Hún hefur verið í sviðsljósinu undanfarin ár, bæði í háskólaboltan sem og með yngri landsliðum Bandaríkjanna en hún varð heimsmeistari með U-17 ára landsliðinu árið 2018 og U-19 ára landsliðinu ári síðar.
Þá hefur hún unnið til fjölda einstaklingsverðlauna.