Ásdís Eir er mannauðstjóri nýsköpunarfyrirtækisins Lucinity (e. VP of People & Culture) en hún starfaði áður sem mannauðsleiðtogi hjá OR. Ásdís er jafnframt formaður Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi.
„Ég held að flest, ef ekki öll fyrirtæki ættu að skoða ávinninginn sem hlýst af góðu samstarfi við háskólana,“ segir Ásdís.
Í gær og í dag fjallar Atvinnulífið um Atvinnudaga HÍ sem nú eru haldnir í sjötta sinn og standa yfir til 4.febrúar. Markmið Atvinnudaga er að undirbúa nemendur í þátttöku á vinnumarkaði en þessi viðburðarvika er stafræn.
Spennandi fyrirtæki horfir til háskólanema
Þótt Lucinity sé rétt ríflega þriggja ára gamalt nýsköpunarfyrirtæki, starfa þar nú þegar tæplega fimmtíu manns.
Þar af nokkrir starfsmenn sem upphaflega kynntust fyrirtækinu þegar þeir unnu lokaverkefnin sín í háskólanum.
Lucinity framleiðir gervigreindarhugbúnað sem hjálpar fyrirtækjum að berjast gegn peningaþvætti. Stærsti hluti starfsmanna er staðsettur á Íslandi en fyrirtækið starfar þó á alþjóðavettvangi.
Og horfir nú þegar hýru auga til háskólanema.
Ásdís var til dæmis meðal þeirra sem tóku þátt í pallborðsumræðum á Atvinnudögum HÍ í gær. Ásdís segir líklegt að Lucinity sé einn þeirra vinnustaða sem munu í auknum mæli horfa til samstarfs við háskólanema.
Til dæmis með þátttöku í Atvinnudögum.
„Hingað til höfum við ekki nýtt okkur Atvinnudaga markvisst, en við horfum hýru auga til þeirra, enda frábær vettvangur til að tengja saman háskólanema og atvinnulífið.“
Ásdís segir líka mikinn ávinning geta falist í samstarfi við háskólanema.
Háskólanemar eru með puttann á púlsinum varðandi það nýjasta sem er að gerast í faginu, eru hugmyndaríkir og óhræddir við að prófa nýja hluti sem hristir upp í reynsluboltum á góðan hátt.
Þá segir Ásdís tilvalið fyrir fyrirtæki sem eru í mikilli uppbyggingu, að skoða samstarf við nemendur í háskólanum. Það sé hægt að gera með alls kyns verkefnavinnu en eins sé samstarf sem þetta eitthvað sem gefur á báða bóga.
„Háskólanemar og nýútskrifað fólk nýtur auðvitað góðs af því að vinna með reynslumeira fólki, en það er ekki síður þannig að reynsluboltar fá líka mjög mikið út úr þannig samstarfi.“

Samstarfið getur stuðlað að fjölbreytileika
Ásdís segir Lucinity vera ungt nýsköpunarfyrirtæki í mikilli uppbyggingu og þar vanti alltaf fólk með alls konar hæfni og færni. Lucinity sé þannig dæmigerður vinnustaður sem horfir til háskólasamfélagsins.
Reynsla Ásdísar sé þó sú, að samstarf við háskólanema sé gjöfult fyrir bæði ung fyrirtæki að hasla sér völl sem og rótgróna vinnustaði. Það þekki hún frá starfi sínu hjá OR áður.
Það er mjög faglega hvetjandi fyrir fólk sem er komið með reynslu að fá að miðla henni til reynsluminna fólks sem er sólgið í að læra og bæta við sig þekkingu.“
Þá segir Ásdís fjölbreytileika vera atriði sem mikilvægt er að vinnustaðir horfi til. Að hennar mati, getur samstarf atvinnulífs og háskólasamfélags stuðlað að þessum fjölbreytileika.
„Við vitum að ólíkur bakgrunnur samstarfsfólks, bæði hvað varðar kyn, aldur, uppruna og annan bakgrunn, skilar sér í betri ákvörðunartöku og árangri. Fjölbreytileiki ætti að vera keppikefli fyrir öll fyrirtæki.“