„Í fyrri hálfleik fannst mér við spila vel. Vörnin var frábær, sóknarleikurinn góður líka og var ég ánægður með allt í fyrri hálfleik.“
„Varnarlega fannst mér við vera með svör við öllu sem Fram gerði í fyrri hálfleik. Mér fannst það ganga sem við lögðum upp með,“ sagði Hrannar Guðmundsson ánægður með fyrri hálfleik Stjörnunnar.
Stjarnan átti hins vegar aldrei möguleika í seinni hálfleik og tók það gestina níu mínútur að komast á blað í seinni hálfleik.
„Þú auðveldar þér ekki lífið með því að skora ekki í níu mínútur. Við horfðum ekki á markið á þessum tímapunkti, í staðinn fyrir að skjóta á markið vorum við bara að gefa boltann.“
Þrátt fyrir að Fram sé í efsta sæti deildarinnar og Stjarnan fimm sætum neðar þá fannst Hrannari sex marka tap ekki eiga að vera munurinn á liðunum.
„Við erum líka með hörkulið og eigum ekki að tapa gegn Fram með sex mörkum, við erum með öll vopn til að vinna þær,“ sagði Hrannar að lokum.