Martin verður frá keppni fram á næsta ár og missir mögulega af öllum sjö leikjunum sem Ísland á eftir í undankeppninni en henni lýkur í febrúar.
„Það er ömurlegt. Við erum í bullandi séns á að komast á HM. Baldur [Þór Ragnarsson] aðstoðarþjálfari landsliðsins var einmitt hér hjá mér í síðustu viku í fríi og við vorum búnir að ræða það fram og til baka hvað gæti orðið. Við höfum aldrei verið svona nálægt því að komast á HM. Við erum með lið sem gæti gert virkilega góða hluti,“ segir Martin.
Með Martin innanborðs vann Ísland nefnilega frábæra sigra á Hollandi á útivelli og gegn Ítalíu á heimavelli. Fjórða liðið í riðlinum, Rússland, var svo dæmt úr keppni.
Því er ljóst að Ísland kemst áfram á seinna stig undankeppninnar fyrir HM og tekur þangað með sér að minnsta kosti tvo sigra, og mögulega þrjá ef liðið vinnur Holland á Ásvöllum 1. júlí.
„Hef áfram bullandi trú á strákunum“
Þannig verður liðið í álitlegri stöðu þegar seinna stig undankeppninnar hefst í ágúst, þar sem Ísland, Holland og Ítalía blandast saman í riðil með Georgíu og Spáni og sennilega Úkraínu. Þrjú liðanna komast á HM.
Ísland spilar hins vegar án síns besta leikmanns, Martins, og það gerir HM-drauminn fjarlægari en Martin vill gera allt sem hann getur til að hjálpa til:
„Þetta er það skemmtilegasta sem maður gerir, að spila með bestu vinum sínum í landsliðinu. Þetta er því hrikalega svekkjandi en ég hef áfram bullandi trú á strákunum. Síðustu tvö ár hef ég ekki verið mikið með landsliðinu og ég held að það hafi hjálpað mönnum að fá enn stærra hlutverk. Það kemur maður í manns stað og ég mun reyna að hjálpa liðinu eins mikið og ég get með öðrum hætti, bara andlega og með því að vera í kringum strákana. Þó ég geti ekki verið inni á gólfinu mun ég leggja mitt að mörkum, hvernig sem ég get gert það.“