Ólafur Egill Egilsson, leikstjóri sýningarinnar, segir þetta vera táknræn tímamót en 66 ára afmæli Bubba ber upp á dagsetningunni 6.6.2022. Söngleikurinn hefur nú verið sýndur 99 sinnum og stendur til að halda sýningum áfram.
„99 er nefnilega 66 frá öðru sjónarhorni og Bubbi hefur alltaf verið laginn við að finna ný sjónarhorn á hlutina. 99. sýning og 66 ára afmæli, þetta fer vel saman,“ sagði Ólafur Egill í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Hann bætir við að engin sýning verksins sé eins og til að mynda hafi fjölmargir ólíkir trúbadorar skipst á að taka þátt í söngleiknum.

Má gera ráð fyrir að sýningin haldi lengi áfram?
„Já, það er bara þannig. Ég myndi segja allavega svona tíu ár í viðbót,“ segir Bubbi glottandi og uppsker kvein úr leikarahópnum fyrir aftan sig.
Borgarleikhúsið færði Bubba sérstaka rós í garðinn í tilefni afmælisins og tók allur salurinn undir í afmælissöng.
Horfa má á sýnishorn úr upphafslagi sýningarinnar í spilaranum hér fyrir neðan.