Fyrsta ferð félagsins til London var farin föstudaginn 3. júní. Vélin flaug hins vegar tóm til Íslands og farþegum Niceair komið til Íslands eftir öðrum leiðum.
Komið hefur í ljós að félaginu barst símtal frá breskum yfirvöldum tíu mínútum eftir brottför, þar sem félaginu var tjáð að það mætti lenda í Bretlandi en ekki flytja farþega þaðan til Íslands.
Félagið tíundaði ástæðurnar í fréttatilkynningu sem gefin var út á föstudaginn síðasta, þar sem félagið greindi frá því að fella þurfti niður ferðir félagsins til London út júní, eða þangað til niðurstaða fæst í málið.
Þorvaldur Lúðvík var mættur á Sprengisand í Bylgjunni þar sem hann var beðinn um að útskýra þetta nánar. Raunar hafði Kristján Kristjánsson, þáttastjórnandi þáttarins, orð á því að hann skildi ekki alveg hverjar ástæðurnar væru fyrir þeim vandkvæðum sem verið hafa á Lundúnarfluginu.
„Ég er ekkert hissa á því að það vefjist fyrir þér að skilja, því að það vefst fyrir okkur líka,“ sagði Þorvaldur Lúðvík.
Hann er nokkuð gagnrýninn á breska stjórnsýslu og málsmeðferð hennar.
„Við erum með útgefnar heimildir, lendingarheimildir, flugheimildir, hvar sem er, dagsett 26. maí. Það er sú vitneskja sem við höfum þegar við förum í loftið.“
Hlusta má á viðtalið í heild sinni hér fyrir neðan.
Tíu mínútum síðar barst örlagaríkt símtal á skrifstofu Niceair þar sem félaginu er tjáð að það megi lenda í Bretlandi en ekki taka með sér farþega heim.
„Við hváum auðvitað hvers vegna þess sé og það kemur bara að skýringar muni koma síðar,“ sagði Þorvaldur Lúðvík.
Vísir hefur áður fjallað um skýringarnar sem bárust. Næsta flug til London var á dagskrá síðastliðinn föstudag og segir Þorvaldur Lúðvík að unnið hafi verið hörðum höndum að því að færa breskum yfirvöldum lausnir sem gætu leyst málið. Þær voru sendar út síðastliðinn fimmtudag.
„En þá fannst Bretunum full nálægt helgi til þess að taka afstöðu til málsins og okkur var nauðugur einn kostur að fella niður flug því ekki bárust svör.“
Hann segir málið hafa komið stjórnendum Niceair í opna skjöldu því að ekkert í viðræðum við bresk yfirvöld í samningaviðræðum um lendingaleyfi hafi gefið til kynna að þetta vandamál sem nú er komið upp, gæti komið upp.
„Þetta er fúlt. Við skulum ekkert fara í kringum það. Og ofsalega óvænt fyrir okkur, “ segir hann.
„Það hringir einhver, ekkert skriflegt. Þetta er bara mjög furðulegt. Og sérkennileg stjórnsýsla.“
Hann reiknar þó ekki með öðru en að fundin verði lausn á málinu.
„Ég á bara von á því að þetta leysist á góðan hátt.“