Útflutningsverðlaunin voru veitt í 34. sinn við hátíðlega athöfn á Bessastöðum klukkan 16 í dag.
Tilgangurinn með veitingu Útflutningverðlaunanna er samkvæmt Íslandsstofu „að vekja athygli á þjóðhagslegu mikilvægi gjaldeyrisöflunar og alþjóðlegra viðskipta og heiðra þá sem hafa náð sérstaklega góðum árangri í sölu og markaðssetningu á íslenskum vörum og þjónustu erlendis.“
Stærsta verkfræðistofa landsins verðlaunuð
Efla verkfræðistofa á rætur að rekja 50 ár aftur í tímann, þegar fyrstu forverar núverandi fyrirtækis urðu til. Árið 2008 varð samruni fjögurra verkfræðistofa, Línuhönnunar, RTS, Afls og Verkfræðistofu Suðurlands. Síðan þá hefur Efla tvöfaldast að stærð og er nú stærsta verkfræðistofa Íslands með um 400 starfsmenn. Velta Eflu árið 2021 var um 7,2 milljarðar króna.
Fyrirtækið hefur starfað við uppbyggingu og þróun orkumála, innviða og atvinnulífs á Íslandi. Helstu viðskiptavinir stofunnar eru sveitarfélög, orku- og veitufyrirtæki, Vegagerðin, iðnaður og stóriðja, ferðaþjónustan og innviðir hennar, og sjávarútvegs- og fiskeldisfyrirtæki.
Fyrirtækið hefur einnig unnið að veigamiklum verkefnum á sviði orkuflutningsmannvirkja víða um heim og er nú með starfsemi í dóttur- og hlutdeildarfélögum í sjö löndum, Noregi, Svíþjóð, Póllandi, Frakklandi, Þýskalandi, Skotlandi og Tyrklandi. Þar að auki hafa verkefni verið unnin á fjölmörgum sviðum í yfir 40 löndum á undanförnum áratug.
Víkingur Heiðar heiðraður
Samhliða afhendingu Útflutningsverðlaunanna var Víkingi Heiðari Ólafssyni, píanóleikara, veitt heiðursviðurkenning fyrir „eftirtektarverð störf á erlendri grundu.“ Meðal fyrri verðlaunahafa eru m.a. Baltasar Kormákur, Vigdís Finnbogadóttir og Björk.
Víkingur Heiðar er einn fremsti einleikari sem Ísland getur státað sig af og undanfarin 10 ár hefur stjarna hans risið hratt á erlendri grundu. Næsta vetur mun hann m.a. vera staðarlistamaður við Southbank Centre í London og koma fram með hljómsveitum á borð við Fílharmóníusveitirnar í Berlín, London og New York.
Upptökur Víkings fyrir Deutsche Grammophon hafa náð eyrum milljóna manna víða um veröld, en á undanförnum árum hefur þeim verið streymt 370 milljón sinnum.
Hann hefur unnið til fjölda alþjóðlegra verðlauna, var meðal annars valinn listamaður ársins hjá Gramophone-tímaritinu árið 2019 og hefur tvívegis hlotið þýsku tónlistarverðlaunin Opus Klassik fyrir bestu einleiksplötu. Fyrr í vor var tilkynnt að Víkingur hljóti hin virtu Rolf Schock verðlaun sem afhent verða í Stokkhólmi í haust.
Útflutningsverðlaunin voru veitt í 34. sinn í dag en þau voru fyrst afhent árið 1989. Í úthlutunarnefndinni sátu Sif Gunnarsdóttir frá embætti forseta Íslands, Gylfi Magnússon frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, Katrín Olga Jóhannesdóttir frá Viðskiptaráði, Þórunn Sveinbjörnsdóttir frá Alþýðusambandi Íslands og Hildur Árnadóttir frá Íslandsstofu, en Íslandsstofa ber ábyrgð á kostnaði og framkvæmd við veitinguna.