Frá þessu er greint á vef Akureyri.net. Þar er haft eftir Sturlu Gunnari Eðvarðssyni, framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar hjá fasteignafélaginu Eik sem segist vinna að ýmsum áherslu - og skipulagsbreytingum sem styrkja munu verslunarmiðstöðina.
„Það er margt skemmtilegt í pípunum og margar stórar hugmyndir í gangi sem er of snemmt að tala um en skýrist vonandi fljótlega,“ segir Sturla.
500 fermetra mathöll er stærsta viðbótin. Verður hún í norðausturhluta verslunarmiðstöðvarinnar, þar sem Kaffitorg og Vodafone eru nú til húsa.
„Við erum langt komin með undirbúning og höfum gengið frá samningi við veitingaaðila sem hafa sannað sig í sambærilegum mathöllum á höfuðborgarsvæðinu. Þetta verður nýtt, flott og spennandi, svona „high end“ stemning, með sófum og þess háttar, virkilega huggulegt,“ segir Sturla.
Stutt er síðan tilkynnt var um opnun mathallar á Glerárgötu. Spurður út í það hvort einkennilegt sé að opna aðra mathöll sneinsnar frá þeirri sem mun rísa á Glerárgötu segir Sturla vilja halda í við sín áform á Glerártorgi óháð áformum annarra.