Perla Sól, sem heldur ekki upp á sextán ára afmælið sitt fyrr en í lok september, náði forystunni í gær og hélt áfram stöðugum og góðum leik sínum í dag.
Perla Sól, sem er í Golfklúbbi Reykjavíkur, lék annan hringinn á 70 höggum og er samtals á parinu eftir 36 fyrstu holurnar. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, líka úr GR, er í öðru sæti á þremur höggum yfir pari.
Perla Sól hefur spilað báða hringina á sjötíu höggum og í þeim báðum hefur hún verið með þrjá fugla og þrjá skolla.
Ólafía Þórunn var fjórum höggum á eftir Perlu eftir fyrsta daginn en tókst að vinna upp eitt högg í dag. Ólafía lék í dag á 69 höggum eða einu höggi undir pari. Hún náði einum erni og tveimur fuglum.
Berglind Björnsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur og Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum Keili léku líka báðar mun betur í dag heldur en í gær.
Berglind var í mjög góðri stöðu en fékk skolla á síðustu tveimur holunum eftir að hafa spilað fyrstu sextán holunum á tveimur höggum undir pari. Hún er á sex höggum yfir pari.
Guðrún Brá lék á sjötíu höggum í dag eða á parinu en hún fékk fjóra fugla á hringnum. Hún endaði hringinn mjög vel og náði þremur fuglum á holum tólf til sextán en skolli á átjándu þýddi að hún endaði á sjö höggum yfir pari samanlagt.
Efstu tíu eftir 36 holur af 72 á Íslandsmóti kvenna í golfi:
- 1. Perla Sól Sigurbrandsdóttir Par
- 2. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir +3
- 3. Berglind Björnsdóttir +6
- 4. Guðrún Brá Björgvinsdóttir +7
- 5. Ragnhildur Kristinsdóttir +8
- 6. Heiða Guðnadóttir +9
- 7. Heiðrún Anna Hlynsdóttir +12
- 8. Ástrós Arnarsdóttir +14
- 8. Andrea Ýr Ásmundsdóttir +14
- 8. Saga Traustadóttir +14