Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, hefur valið hópinn sinn fyrir tvo síðustu leiki íslenska liðsins í riðli sínum í undankeppni HM en þeir fara fram í byrjun næsta mánaðar.
Íslenska liðið á enn góða möguleika á að komast beint á heimsmeistaramótið sem fer fram í Ástralíu og Nýja-Sjálandi á næsta ári. Stelpurnar okkar eru öruggar með sæti í umspili en þurfa að vinna Hvíta-Rússland og hagstæð úrslit á móti Hollandi á útivelli til að tryggja sér sigur í riðlinum og beint sæti á HM 2023.
Holland er með tveggja stiga forystu á Ísland en hefur leikið leik meira og á bara eftir innbyrðis leikinn við Ísland. Íslensku stelpurnar komast því á toppinn með sigri á Hvíta-Rússlandi og myndi þá nægja jafntefli í lokaleiknum í Hollandi.
Þetta er fyrsta verkefni íslenska landsliðsins frá Evrópumótinu í Englandi þar sem íslenska liðið tapaði ekki leik.
Hallbera Guðný Gísladóttir setti fótboltaskóna upp á hilluna eftir Evrópumótið og er því skiljanlega ekki í hópnum nú. Þorsteinn gerir þrjár aðrar breytingar á EM-hópnum.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er meidd og ekki í hópnum. Það er mikið áfall fyrir liðið enda var þessi unga knattspyrnukona að spila frábærlega á EM.
Arna Sif Ásgrímsdóttir og Hlín Eiríksdóttir koma báðar inn í hópinn með mikil umræða var um það hvort að þær hefðu átt að fara með á EM eftir góða frammistöðu í sumar.
Markverðirnir Cecilía Rán Rúnarsdóttir og Telma Ívarsdóttir eru meiddar og í stað þeirra eru þær Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving og Íris Dögg Gunnarsdóttir í hópnum sem báðar komu inn í hann á miðju EM.
Hópur A kvenna sem mætir Belarús og Hollandi í undankeppni HM 2023.
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) August 19, 2022
Ísland mætir Belarús á Laugardalsvelli 2. september og Hollandi í Utrecht 6. september.
Our squad for the @FIFAWWC qualifiers against Belarus and the Netherlands.#alltundir #dottir pic.twitter.com/UzdjESr46f
- Hópurinn
- Sandra Sigurðardóttir - Valur - 45 leikir
- Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving - ÍBV
- Íris Dögg Gunnarsdóttir - Þróttur R.
-
Varnarmenn:
- Elísa Viðarsdóttir - Valur - 48 leikir
- Guðný Árnadóttir - AC Milan - 16 leikir
- Glódís Perla Viggósdóttir - Bayern Munchen - 105 leikir, 6 mörk
- Ingibjörg Sigurðardóttir - Valerenga - 46 leikir
- Guðrún Arnardóttir - FC Rosengard - 21 leikur, 1 mark
- Arna Sif Ásgrímsdóttir - Valur - 12 leikir, 1 mark
- Sif Atladóttir - Selfoss - 90 leikir
- Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir - Breiðablik - 8 leikir
-
Miðjumenn:
- Dagný Brynjarsdóttir - West Ham - 105 leikir, 35 mörk
- Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir - Orlando Pride - 93 leikir, 14 mörk
- Alexandra Jóhannsdóttir - Eintracht Frankfurt - 26 leikir, 3 mörk
- Sara Björk Gunnarsdóttir - Juventus - 142 leikir, 22 mörk
- Selma Sól Magnúsdóttir - Rosenborg - 18 leikir, 2 mörk
-
Sóknarmenn:
- Berglind Björg Þorvaldsdóttir - SK Brann - 66 leikir, 12 mörk
- Agla María Albertsdóttir - Breiðablik - 50 leikir, 4 mörk
- Sveindís Jane Jónsdóttir - VfL Wolfsburg - 22 leikir, 7 mörk
- Svava Rós Guðmundsdóttir - SK Brann - 39 leikir, 2 mörk
- Amanda Jacobsen Andradóttir - Kristianstads DFF - 7 leikir
- Elín Metta Jensen - Valur - 60 leikir, 16 mörk
- Hlín Eiríksdóttir - Pitea IF - 20 leikir, 3 mörk