Sjálf átti Sandra frábæran leik í markinu í kvöld, en hollenskt mark á lokasekúndum leiksins sá til þess að íslensku stelpurnar þurfa að fara í umspil á meðan þær hollensku fá beint sæti á HM.
„Við töpuðum samt og það er það sem ég er að hugsa um, ekki endilega það sem ég gerði. Við töpuðum, ég ætlaði að komast á HM í dag, en það tókst ekki.“
En hvernig er stemningin í klefanum eftir svona leik þar sem liðið er svona grátlega nálægt því að tryggja sér farseðilinn á HM í fyrsta skipti í sögunni?
„Hún er bara auðvitað þung. Auðvitað er það klisja að við eigum að bera höfuðið hátt og við erum enn í möguleika, en þurfum bara að fara lengri leið. Við erum metnaðarfullar og ætluðum að klára þetta í dag og vorum bara örfáum sekúndum frá því. Það er bara það sem er mest svekkjandi.“
Íslenska liðið vissi fyrir leikinn að leikurinn í kvöld yrði þeim erfiður, en á löngum köflum í fyrri hálfleik var hreint ótrúlegt að staðan væri enn markalaus.
„Við vissum svo sem að það myndi alveg liggja á okkur á einhverjum tímapunkti. Ég tek það ekki af hollensku stelpunum að þær eru með frábært lið. En einhvernveginn var ég með tilfinningu í leiknum að við myndum halda hreinu og að við myndum klára þetta. Við vorum bara eins nálægt því og hægt er og það er ansi súrt.“
Eins og áður segir átti Sandra frábæran leik í íslenska markinu þar sem hún varði eins og berserkur, þá aðallega í fyrri hálfleik. Hún segir að mögulega sé þetta hennar besti landsleikur, en þó leikur sem hún vilji gleyma sem fyrst.
„Ég er svo sem ekkert búin að fara yfir þetta mikið í huganum þannig. En jú ég man eftir einhverju og ég gerði vel. Mig langar bara að gleyma honum og halda áfram.“
Von íslenska liðsins er þó langt frá því að vera úti þar sem nú tekur við umspil, en Sandra segir ekkert annað í boði en að klára það verkefni og tryggja sæti íslands á HM.
„Við hengjum haus í dag og kannski eitthvað fram eftir degi á morgun. En svo þurfum við bara að einbeita okkur að næsta verkefni og við sjáum hvað við fáum. Ég held að það sé dregið á föstudaginn. Við ætlum okkur á HM þó það hafi ekki tekist í dag. Við tökum bara næsta verkefni.“