Nokkuð öruggt að flestir svara já við þessari spurningu enda er ótrúlega margt fólk þarna úti sem hreinlega hefur svo mikið sjálfsöryggi að það kemur fram eins og sérfræðingur en er í raun bara rugludallur.
Eða hefur það sem atvinnu að hljóma eins og sérfræðingur.
Þekkt einkenni er til dæmis þegar viðkomandi notar flott orð á ensku eða einhverja frasa.
Þegar að við erum hins vegar að meta vörukaup eða þjónustu, eða jafnvel að ráða nýtt fólk til vinnu, getur verið mikilvægt fyrir okkur að átta okkur á því hvað fyrstu kynni eru í raun að segja okkur um sérfræðiþekkingu viðkomandi.
Thora Tenbrink er prófessor við Bangor háskólann í Bretlandi. Hún hefur staðið fyrir fjöldanum öllum af rannsóknum síðustu áratugina þar sem hún hefur skoðað það sérstaklega, hvernig það hvernig við tölum og komum fram, getur oft gefið ranga vísbendingu um hvað við vitum eða getum.
Til dæmis getur sérfræðingur verið mjög óöruggur og feiminn að eðlisfari og ekki góður í samskiptum. Fyrir vikið er fólk kannski ekki að taka nógu mikið mark á því hvað viðkomandi er að segja.
Að sama skapi getur einhver sem er með mjög mikið sjálfsöryggi og góðan talanda, bablað út í eitt þannig að fólk telur viðkomandi algjöran sérfræðing á sínu sviði.
Tenbrink segir okkur geta áttað okkur á því hverjir eru fyrir alvöru sérfræðingar og hverjir ekki, með því að horfa sérstaklega á eftirfarandi fimm atriði.
Hversu líklegt er að viðkomandi sé sérfræðingur?
Hér þurfum við að meta þær upplýsingar sem við höfum um viðkomandi eða afla okkur upplýsinga. Hver er til dæmis bakgrunnurinn; menntun og reynsla?
Ef við hittum einhvern sem klárlega vill að við upplifum sig sem mikinn sérfræðing á sínu sviði, en við erum ekki viss, er líka gott að velta fyrir okkur hvert líklegt markmið viðkomandi er með spjallinu við okkur og meta innihaldið eftir því. Er viðkomandi til dæmis að selja eitthvað?
Hvernig er framkoman og talandinn almennt?
Þá er gott að velta fyrir sér almenna framkomu eða talanda viðkomandi. Til dæmis hvort hann/hún tali mikið um alla hluti, eigi auðvelt með að vera svolítið dóminerandi í samtölum fólks og svo framvegis.
Virðið sem felst í að hlusta og lesa á milli línanna getur nefnilega verið ótrúlega dýrmætt og gefið okkur miklar upplýsingar.
Dýptin í samtölunum
Það sem einkennir svolítið fólk sem í raun veit lítið um hvað það er að tala, er hversu grunnt það fer í samtölin.
Skautar það í gegnum samtölin án þess að fara á dýptina? Hversu djúpt í saumana er viðkomandi fyrir alvöru að fara í málin?
Að vita og vita ekki
Annað sem er ágætt að hafa á bakvið eyrað er að við erum aldrei alvitur um neitt. Og það eru alvöru sérfræðingar mjög meðvitaðir um.
Þess vegna er sérfræðingur líklegur til tala fyrir ákveðnum hlutum með rökstuðningi, benda á staðreyndir eða gögn, á meðan sá sem veit minna getur auðveldlega bablað út í eitt.
Hvernig upplýsingar ertu að fá?
Sumir geta reyndar vitað heilmikið gagnlegt um mál án þess að vera fyrir alvöru sérfræðingar. Ef þú er að spjalla við einstakling og ert að velta fyrir þér hvernig þú eigir að meta hann/hana sem sérfræðing getur þú prófað að ímynda þér muninn á því að fá upplýsingar um heimilisfang með Google map kortavísinum í samanburði við frá vini.
Vinur getur gefið þér leiðbeiningar með meiri lýsingum en Google maps, þótt hvoru tveggja nýtist vel.
Þannig að stundum snýst málið um í hvers konar sérfræðing þú ert að leita og hvers konar upplýsingar þú vilt eða þarft að fá.