Stjarnan mætir þá Keflavík í undanúrslitaleik VÍS bikars kvenna í Laugardagshöllinni en Keflavíkurkonur eru á toppnum í Subway deildinni og hafa verið besta liðið á landinu í vetur.
Stjörnukonur hafa unnið alla fjórtán leiki sína á leiktíðinni, alla tólf deildarleikina í b-deildinni og svo báða bikarleikina þar sem liði sló meðal annars út efstudeildarliði ÍR í átta liða úrslitunum.
Það sem gerir þennan árangur Stjörnuliðsins enn athyglisverðari er hversu ungt liðið er en fáar í liðinu eru í raun gengnar upp í meistaraflokkinn. Það er því hreinlega spurning um það hversu verða margar með bílpróf í byrjunarliði Stjörnunnar í kvöld.
Í bikarsigrinum á ÍR í síðustu umferð þá byrjuðu hin 25 ára gamla Riley Marie Popplewell og hin nítján ára A-landsliðskona Diljá Ögn Lárusdóttir. Hinar sem byrjuðu leikinn voru hin átján ára gamla Bergdís Lilja Þorsteinsdóttir og svo tvær fimmtán ára stelpur, Ísold Sævarsdóttir og Bára Björk Óladóttir.
Í síðasta deildarleik voru í byrjunarliðinu hin nítján ára Diljá Ögn, hin átján ára Bergdís Lilja og hin fimmtán ára Bára Björk allar í byrjunarliðinu en hinar sen byrjuðu þann leik voru Kolbrún María Ármannsdóttir og Elísabet Ólafsdóttir sem eru báðar fimmtán ára. Meirihluti byrjunarliðsins í síðasta deildarleik voru því stelpur fæddar árið 2007.
Í bikarsigrinum á ÍR þá voru síðan tvær fimmtán ára stelpur í Stjörnuliðinu afar atkvæðamiklar en þær skoruðu í leiknum 21 stig (Ísold Sævarsdóttir) og 19 stig (Kolbrún María Ármannsdóttir).
Tvær fimmtán ára stelpur til viðbótar hafa einnig fengið að byrja leik í 1. deildinni í vetur en það eru þær Heiðrún Björg Hlynsdóttir og Fanney María Freysdóttir. Það þarf ekkert að deila um það að 2007-árangurinn í Stjörnunni er næstum því allur farinn að láta til sín taka í meistaraflokki þótt að það séu enn fimm ár í að þær gangi upp í meistaraflokk.
„Við erum öll rosalega spennt fyrir því að taka þátt í þessu verkefni. Þetta er stórleikur og það er fróðlegt að fá að máta okkur við Subway-deildarliðin þar sem að við sitjum efstar í 1. deildinni,“ sagði Auður Ólafsdóttir, þjálfari Stjörnunnar, í hádegisfréttum Bylgjunnar.
„Þetta verður mjög erfiður leikur og Keflavík spilar skemmtilegan körfubolta. Við förum í þennan leik, eins og alla aðra leiki, til að vinna. Svo veit maður alveg að í bikarkeppni getur ýmislegt gerst. Við áttum okkur alveg á því að þetta er risabiti,“ sagði Auður.
Leikur Stjörnunnar og Keflavík hefst klukkan 20.00 í kvöld og verður fylgst með honum hér á Vísi. Á undan, eða klukkan 17.15, verður hinn undanúrslitaleikurinn milli Snæfells og Hauka.