Ísak Bergmann var á meðal leikmanna sem ekki tóku þátt á æfingu gærdagsins en liðsfélagi hans hjá FC Kaupmannahöfn, Hákon Arnar Haraldsson, Mikael Anderson og Rúnar Alex Rúnarsson sátu einnig hjá í gær þar sem þeir höfðu spilað með félagi sínu deginum áður.
Hörður Björgvin Magnússon, Alfreð Finnbogason og Alfons Sampsted voru þá ekki á æfingasvæðinu í gær en tóku allir fullan þátt í æfingu dagsins sem fram fór á æfingasvæði kvennaliðs og unglingaliða Bayern München.
Það æfingasvæði er töluvert tilkomumeira en heimavöllur 4. deildarliðsins Unterhaching sem liðið æfði á í gær - í það minnsta leit grasið töluvert betur út.
Liðið snýr aftur á heimavöll Unterhaching á morgun og tekur þar sína síðustu æfingu hér í München áður en það flýgur út til Bosníu síðar þann daginn.