Þetta kemur fram í ársreikningi Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar hf. fyrir tímabilið 1. mars 2022 til 28. febrúar 2023.
Þar segir að rekstrarhagnaður fyrirtækisins fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) hafi verið 885 milljónir króna á fjórða ársfjórðungi 2022 en 446 milljónir króna á sama tímabili árið 2021. Hann hækkaði því um 439 milljónir króna milli tímabila eða 98%.
Þá var hagnaður eftir skatta á tímabilinu 505 milljónir króna og jókst hann um 364 milljónir króna milli ára.
Sala til hótela aldrei verið meiri
Sömuleiðis segir í ársreikningnum að á fjárhagsárinu 2022 hafi veltuaukning numið 6,6 milljörðum króna eða sem nemur 20,7%.
Veltuaukningu megi rekja til aukinnar sölu á bæði framleiðsluvörum og innflutningsvöru en um 71% af veltuaukningunni megi rekja til drykkjarvöru. Einnig kemur fram að sala á bjór í kútum hafi aukist um 48% í lítrum talið á árinu.
Sala Ölgerðarinnar til hótela og veitingastaða jókst um 55% og fyrirtækja um 45%. Enn fremur sé hlutfall heildarveltu Ölgerðarinnar til hótela og veitingastaða 19% og það hafi aldrei verið hærra. Stóraukning á sölu bjórs í kútum spilar þar stóra rullu.