„Í rauninni erum við fyrst og fremst að gera þetta fyrir starfsfólkið okkar, númer eitt, tvö og þrjú. Ég held að það sé bara hluti af því að eiga flott fyrirtæki að það sé líka flott fyrirtæki til að starfa í. Maður verður að eiga framtíð líka þar sem maður er að vinna,“ segir Leifur Dam Leifsson, annar eigenda GG sport, í samtali við fréttastofu.
Leifur og Tómas Jón Sigmundsson, hinn eigandi GG sport, greindu frá því á Facebook-síðu verslunarinnar í gær að frá og með næstu mánaðarmótum myndi verslunin loka klukkan 17 í stað 18 eins og áður. Umræðan um styttri opnunartíma verslana hafi ýtt þeim í að breyta opnunartímanum hjá sér.
Leifur segir opnunartíma leikskóla, styttingu vinnuvikunnar og síðast en ekki síst samverustundir starfsfólks með fjölskyldunni hafa vegið gríðarlega þungt í þessari ákvörðun.
„Ég held að með þessu skrefi séum við frekar að leiðrétta heldur en hitt. Ég held að með sérverslanir eins og okkar, það sé bara barns síns tíma að vera með opið fram eftir öllu og allir séu komnir heim klukkan hálf sjö. Það skapar óþarfa álag fyrir þá sem eru að vinna á þessum tíma.“
Þá hvetur Leifur fleiri sérverslanir til að fylgja fordæminu:
„Við verðum náttúrulega bara að hugsa um okkur en ég trúi því að aðrar verslanir muni skoða þetta mjög alvarlega. Vonandi verður þetta til þess að fleiri sigli með í kjölfarið. Ég svo sannarlega skora á sérverslanir, og sérstaklega útivistarbúðir í sama geira og við, að skoða þessi mál alvarlega.“

Starfsfólkið ánægt og meiri stöðugleiki
Einhverjir eigendur gætu haft áhyggjur af áhrifum sem styttri opnunartími geti haft á hagnað verslunarinnar en Leifur er ekki hræddur við slíkt. Þeir eigi stöndugt og gott fyrirtæki sem rekið er með góðum hagnaði á hverju ári.
„Ég tel svo að fjárfesting í fólkinu okkar vegur virkilega þungt og ef við værum að hugsa svoleiðis að við séum að tapa einhverri veltu þá held ég að við séum að kasta krónunni fyrir aurinn, ekki spurning.“
Þá telur hann að þessi breyting eigi eftir að skapa miklu meiri stöðugleika fyrir verslunina. „Ef þú einbeitir þér að því að búa til flott fyrirtæki sem þú ert stoltur af þá hefur alltaf hitt komið af sjálfu sér og það mun svo sannarlega gera það.“
Er starfsfólk verslunarinnar ánægt með þessa breytingu?
„Já veistu það, starfsfólkið er himinlifandi. Við sendum þeim tilkynningu og það var bara knús og kossar þegar við mættum í vinnuna á mánudaginn. Svo auglýstum við þetta í gær og ég er algjörlega orðlaus yfir viðbrögðunum. Ég get ekki séð annað en að fólk sé ánægt með þetta, ég finn bara fyrir meðbyr og ég er alveg sannfærður um að þetta sé skref í rétta átt.“