„Það er stemming í hópnum og ég held að það séu allir fullir tilhlökkunar fyrir fyrsta leik.“
Ísland hefur leikið tvo leiki í J-riðli og náð í einn sigur. Jón samsinnti því að það væri gríðarlega mikilvægt upp á framhaldið að gera að ná í stig og jafnvel sigur.
„Auðvitað er þetta gríðarlega mikilvægur leikur í riðlinum og það væri geggjað að ná í úrslit.“
Aðspurður um hvernig landsliðsþjálfarinn Åge Hareide væri að koma inn í íslenska hópinn sagði Jón Dagur að það væri allt til fyrirmyndar.
„Mjög vel. Við erum búnir að vera saman allur hópurinn síðan í gær og við vorum búnir að taka einhverjar æfingar fyrir það. Mér líst mjög vel á allt.“
Jón Dagur lék eins og áður sagði í Belgíu í vetur og sagðist vera ánægður með tímabilið og sína spilamennsku, en það hefði gert honum gott að skipta um umhverfi, en hann lék áður með AGF í Danmörku.
„Mér fannst gaman að breyta um umhverfi. Ég var búinn að vera í Danmörku í fjögur ár. Virkilega gaman að spila í Belgíu og ég er að koma vel undan tímabilinu.“
Hann gat ekki svarað því hvað tæki við á næsta tímabili, en ítrekaði að hann væri ánægður með dvölina í Belgíu.
„Ég bara veit það ekki. Það gæti alveg gerst en ég er mjög ánægður þarna og mjög opinn.“
Þar næsti leikur Íslands er svo gegn stórliði Portúgal. Það er óneitnalega fiðringur í mönnum yfir þeirri áskorun.
„Algjörlega. Þeir eru með frábært lið og Ronaldo að mæta, það verður bara mjög gaman.“
Íslenska landsliðið mætir Slóvakíu á Laugardalsvelli á laugardag. Leikurinn hefst kl. 18:45 og verður í beinni textalýsingu hér á Vísi. Viðtalið við Jón Dag má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan .