Þetta segir í spá Veðurstofunnar um veðurhorfur á landinu í dag. Þá segir að hiti verði á bilinu tíu til sautján stig en það verði fimm til tíu stig austanlands.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það verði ákveðnar austan- og norðaustanáttir fimmtudag og föstudag en það muni lægja um helgina. Það verði bjart með köflum og fremur hlýtt vestantil, en skýjað og svalara eystra. Líklega skúrir sunnanlands á sunnudag.
Veðurvakt spáir því að vegna hægviðris verði gasmengun því mest nærri upptökunum, en vaxandi suðaustanátt annað kvöld muni blása gasmengun yfir vestanvert Reykjanes.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag: Austan- og norðaustan 5-15 m/s og skýjað með köflum, hvassast syðst, en lítilsháttar væta á Norður- og Austurlandi. Hiti tíu til nítján stig, hlýjast sunnan- og vestanlands.
Á föstudag: Norðaustlæg átt, 3-10 m/s og skýjað með köflum og úrkomulítið. Kólnar dálítið í veðri.
Á laugardag, sunnudag og mánudag: Hæg, breytileg átt, skýjað með köflum og stöku skúrir. Hiti víða tíu til sautján stig.