“Ég er sem sagt búin að vera að taka út refsingu. Við erum sem sagt í „Fantasy” deild, sem er svona fótboltaleikur þar sem þú velur leikmenn, sem skora stig eftir því sem þeir gera á vellinum. Við erum 12 saman vinir, sem höfum verið í þessu síðustu þrjú ár og ég endaði í síðasta sæti á þessu tímabili og fæ þar af leiðandi tíu tíma sundrefsingu, sem er búin að taka sinn toll í dag,” segir Eyþór Atli Olsen Finnsson.
En hvernig hefur dagurinn verið?
„Þetta er búið að vera erfitt, mikil sól og lítið borðað, mikil einvera, já bara erfitt. Einn félagi minn úr hópnum kom reyndar með langloku fyrir mig og kók og svo sundlaugarverðirnir, þeir eru búnir að sinna mér alveg eins og kóngi, gáfu mér banana, kókómjólk og kaffi.”
Eyþór Atli segist ekki stunda sundlaugar mikið en í dag hafi hann safnað í reynslubankann hvað varðar að vera mjög, mjög lengi í sundi í einu.
En hvað heldur hann að fólki haldi um refsingu dagsins?
„Hálfasnalegt bara, nei, það er alltaf refsing á hverju ári fyrir síðasta sæti. Í fyrra voru það 12 tímar á Olís á Arnbergi hér á Selfossi. Núna er það sund og á næsta ári verður það eitthvað annað skemmtilegt.”

Einn og einn vinur heimsótti Eyþór í laugina.
„Hann elskar athyglina eins og þú sérð þegar hann fór í rennibrautina fyrir myndavélina,” segir Árni Evert Leósson hlægjandi og vinur Eyþórs Atla.
