Orri skoraði þrennu í leiknum, í 6-3 sigri FCK, og átti stóran þátt í að koma liðinu áfram í 3. umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Það þurfti hann reyndar að gera með því að slá út pabba sinn, Óskar Hrafn Þorvaldsson.
Neestrup segist sjálfsagt aldrei hafa þjálfað leikmann sem sé eins góður í að klára færi með fótunum, eins og Orri, sem kláraði færin sín listilega vel gegn Blikum í gærkvöld, eins og sjá má í myndskeiðinu hér að neðan.
„Þetta er skemmtilegt fyrir Orra. Hann átti góða innkomu á Íslandi [í fyrri leiknum við Breiðablik] og góða innkomu í Vejle [í deildarleik á milli leikjanna við Blika]. Svo skorar hann þrjú í dag,“ hefur Ekstra Bladet eftir Neestrup sem hleypti Orra að láni til Sönderjyske á síðustu leiktíð en virðist ætla að nýta krafta hans á þessari leiktíð.
„Við höfum trú á honum. Þetta er kannski sá besti í að klára færi með fótunum, sem ég hef nokkru sinni þjálfað,“ sagði Neestrup sem tók við FCK í fyrra og gerði liðið að tvöföldum meistara í fyrstu tilraun.
„Trén vaxa þó ekki upp til skýjanna bara af því að maður skorar þrennu gegn Breiðabliki. En þetta er leikmaður sem við höfum trú á og viljum hafa í liðinu til framtíðar,“ sagði Neestrup.
Verstu mínútur í stjórnartíð Neestrup
Þjálfarinn var hins vegar hundóánægður með spilamennsku FCK fyrsta hálftíma leiksins í gær, þegar liðið lenti 1-0 undir gegn Breiðabliki eftir frábært mark Jasons Daða Svanþórssonar, þó að hann væri ánægður með að komast í næstu umferð.
„Við verðum að skoða fyrstu 20-25 mínúturnar af leiknum, sem eru þær verstu frá því að ég byrjaði að þjálfa FCK. Við tökum því alvarlega þó að okkur hafi tekist að bæta úr stöðunni fyrir hálfleik.
Við megum ekki fara svona langt niður og við vorum bæði að gera tæknifeila og villur í skipulaginu. Áður en að Breiðablik komst yfir höfðum við þegar fengið tvær viðvaranir,“ sagði Neestrup við heimasíðu FCK.