Hér erum við að tala um Alex Óla Jónsson, sem kom sá og sigraði í söngvakeppni barnanna á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um síðustu helgi í flokknum níu til þrettán ára. Hann söng lagið „Lítil drengur“ og sló algjörlega í gegn með fallegum og einlægum flutningi.
„Ég fæddist með svo flotta rödd. Ég byrjaði að syngja þegar ég var eitthvað lítill og ég söng líka í brúðkaupinu hjá mömmu minni og pabba, þar söng ég „Maístjörnuna“, segir Alex Óli.
Og brekkan söng með þér og klappaði í Vestmannaeyjum?
„Já, ég vildi að ég gæti gert þetta alveg hundrað milljón sinnum, þetta var geðveikt.“
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór?
„Ég ætla bara að vera frægur söngvari, heimsfrægur og mjög góður dansari,“ segir Alex Óli brosandi.
Það er ekki nóg með að Alex Óli sé góður að syngja því hann er líka að læra samkvæmisdans og hefur unnið til fjölda verðlauna í dansinum með dansfélaga sínum, sem heitir Ísabella Birta Unnarsdóttir og er líka níu ára.
„Við erum búin að keppa á rosalega mörgum mótum og alveg fullt í útlöndum,“ segir Alex Óli.
Foreldrar Alex Óla og litli bróðir hans, Erik Óli, sjö ára eru að rifna úr stolti af söngvaranum og dansaranum á heimilinu.
Hvernig leið ykkur í Eyjum þegar hann var að syngja?
„Það er eiginlega ekki hægt að lýsa því, maður var með tárin í augunum og ótrúlega stolt bara,“ segir Þórunn Anna Ólafsdóttir.
„Hann vaknar syngjandi og sofnar syngjandi og svo er hann að dansa, hann er ótrúlega hæfileikaríkur,“ segir Jón Rúnar Gíslason.
Og Alex Óli tekur stundum lagið með pabba sínum, sem spilar þá á gítar og þá er stundum sungið á ensku.