Strákur eða stelpa?
Þetta er spurning sem brennur á mörgum, ef ekki flestum, verðandi foreldrum. Síðustu ár hefur orðið æ algengara að fólk afhjúpi kyn barna sinna í viðurvist vina og vandamanna með pompi og prakt.
Og það var sannarlega pomp og prakt sem einkenndi kynjaveislu Birgittu Lífar Björnsdóttur áhrifavalds í gær. Birgitta og unnusti hennar Enok sviptu hulunni af kyni barns síns með því að leigja þyrlu, sem blés út bláum reyk. Barnið er semsagt strákur. Þyrlan vakti mikla athygli sveimandi úti fyrir höfuðborginni, eins og sést í meðfylgjandi innslagi, og ljóst að veislan öll hefur kostað skildinginn.
Reyndar hafa Birgitta og Enok þó líklegast sparað sér umtalsverðar fjárhæðir með því að auglýsa veisluföng og skreytingar á sínum miðlum. Sé rennt yfir myndir úr veislunni eru þær margar rækilega merktar hinum ýmsu styrktaraðilum. Þá þvertekur flugmaður þyrlunnar fyrir það í samtali við Viðskiptablaðið í dag að þyrluflugið hafi kostað mörghundruð þúsund krónur, eins og margir hafi haldið fram á samfélagsmiðlum í dag. „Þetta var örugglega ódýrasta þyrluflug sem ég hef flogið,“ hefur blaðið eftir þyrluflugmanninum Andra Jóhannessyni.
Allur skalinn
En það búa ekki allir svo vel að vera áhrifavaldar og eins og áður segir verða kynjaveislur æ vinsælli. Um það vottar Katrín Ösp Gústafsdóttir eigandi verslunarinnar Allt í köku, sem sérhæfir sig í skreytingum fyrir hin ýmsu tilefni.
Eru dæmi um að fólk sé að eyða hundruðum þúsunda í svona?
„Já það er alveg svoleiðis, þetta er allur skalinn. Allt frá því að ná sér í einn matarlit og að ná sér í alla veisluna og þjónustu í kringum það,“ segir Katrín.

Síðustu ár hafa kynjaafhjúpanir ítrekað ratað í heimsfréttirnar fyrir að enda með ósköpum - nú síðast í sumar fórst flugmaður í Mexíkó við slíka afhjúpun. Og kynjaveisla í Arizona kom af stað gríðarlegum gróðureldum árið 2017. Báðum atvikum eru gerð skil í innslaginu fyrir ofan.
Íslendingar fara yfirleitt öruggari leiðir í sínum kynjaafhjúpunum, sem eru jafnvel farnar að leysa skírnarveislur af hólmi. Fólk felur gjarnan kynið í bláu eða bleiku innvolsi köku, eða jafnvel blöðru.
Við fórum yfir það vinsælasta í kynjaafhjúpunum þessi misserin í kvöldfréttum Stöðvar 2 og fréttamaður spreytti sig á kynjabombu.