„Hins vegar er umhugsunarvert að sjá að enn eru mun fleiri konur í kulnun en karlmenn og eins er sláandi að sjá hversu hátt hlutfall Z kynslóðarinnar er í kulnun, en það er yngsta kynslóðin á vinnumarkaði.“
Ánægja í starfi mikilvægur áhrifaþáttur
Þetta er í fjórða sinn sem Prósent kynnir niðurstöður rannsóknar um kulnun, en rannsóknin byggir á Maslach-módelinu.
Svarendur í rannsókn Prósents eru um 900, 18 ára og eldri, sem eru á vinnumarkaði. Gögnin eru vigtuð með tilliti til kyns, aldurs og búsetu til að úrtak endurspegli álit þjóðarinnar. Könnunin fór þannig fram að spurningar voru lagðar fyrir á sjö punkta kvarða frá aldrei til daglega.
„Niðurstöðurnar sýna til dæmis að 35 prósent fólks upplifir sig tilfinningalega úrvinda vegna vinnunnar, vikulega eða oftar,” segir Trausti.
Þá segir hann mjög áhugavert að það er marktækt minni kulnun í hópi þeirra sem eru ánægð í starfi heldur en í hópi þeirra sem eru óánægðari í starfi.
„Aðeins tvö prósent fólks sem er mjög ánægt í starfi er í kulnun og í þessum hópi eru afköst í starfi mjög mikil. Hins vegar fer hlutfall þeirra sem er í kulnun upp í 30 prósent meðal þeirra sem eru óánægð í starfi.“

Trausti segir að fleiri upplifa sig útkeyrða í lok vinnudags nú í samanburði við fyrir Covid og það sama megi segja við þá upplifun að fólk telji sig tilfinningalega úrvinda vegna vinnu sinnar.
35% fólks á vinnumarkaði upplifir sig tilfinningalega úrvinda vegna vinnu sinnar, vikulega eða oftar.
Þá segist fólk oftar útkeyrt í lok vinnudags nú en fyrir Covid mældist meðalfjöldi slíkra vinnudaga vera 51 vinnudagur á ári í samanburði við 65 vinnudaga nú.”

Kulnun áberandi hjá Z kynslóðinni og konum
Trausti segir að þótt að hlutfall þeirra sem eru í kulnun sé lægra en í fyrra, þurfi þó að hafa í huga hvaða fjöldi stendur á bakvið tölurnar.
„Á vinnumarkaði eru um tvöhundruð þúsund manns, sem þýðir að ef átta prósent starfsfólks er í kulnun þá þýðir það um 16 þúsund einstaklingar.”
Sem fyrr eru fleiri konur í kulnun en karlmenn.
„Ellefu prósent kvenna eru í kulnun í samanburði við fimm prósent karla. Þetta er marktækur munur og nokkuð sláandi,” segir Trausti og bætir við:
Í þessu samhengi er líka áhugavert að rýna í niðurstöður annarra rannsókna. Ég nefni sérstaklega rannsóknir Prósents um þriðju vaktina sem sýna með mjög áberandi hætti hvernig konur eru enn að sjá að mestu um allt sem snýr að heimili og fjölskyldu.”
Þá segir Trausti einnig áhyggjuefni hversu hátt hlutfall Z-kynslóðarinnar á aldrinum 18 til 24 ára eru í kulnun, en sú tala mældist núna átján prósent.
Í öðrum rannsóknum Prósents sést einnig að þessi kynslóð er óhamingjusömust og er t.d. með mestu fjárhagsáhyggjurnar samanborið við aðrar kynslóðir.”
Sem fyrr mælist kulnun hæst hlutfallslega hjá fólki sem starfar í sölu- og markaðsmálum.
„Það er hins vegar ekki fjölmennasti hópurinn og þess vegna mætti kannski líka skoða sérstaklega fjölmennar starfstéttir eins og fólk sem starfar í heilbrigðisþjónustu eða við kennslu. Ellefu prósent fólks í heilbrigðisþjónustu mælast í kulnun og tíu prósent fólks í kennslu. Í báðum þessum starfsstéttum mælast fimmtán prósent kvenna í kulnun.”
