Í fréttatilkynningu þess efnis segir að hún komi til 66°Norður frá Landsvirkjun þar sem hún hafi starfað sem forstöðumaður fjárstýringar síðan í árslok 2021. Fyrir það hafi Þórdís Anna starfað í fyrirtækjaráðgjöf Kviku banka og þar áður hjá Icelandair sem forstöðumaður tekjustýringar hjá flugfélaginu.
Þórdís er með MS gráðu í iðnaðarverkfræði frá Georgia Institute of Technology í Atlanta, Bandaríkjunum og BS gráðu í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur einnig lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.
„Það eru virkilega spennandi tímar fram undan hjá 66°Norður og ógrynni af tækifærum. Ég hlakka til að taka þátt í áframhaldandi vexti félagsins í hópi úrvals samstarfsfólks,“ segir er haft eftir Þórdísi Önnu.
„Það er ánægjuefni að fá Þórdísi í stjórnendateymi félagsins en hún býr yfir mikilli reynslu af fjármálamörkuðum, bæði hér heima og erlendis, sem mun nýtast vel við eflingu fyrirtækisins á alþjóðlegum mörkuðum á komandi árum,“ er haft eftir Helga Rúnari Óskarssyni, forstjóra 66°Norður.