Septain Raharja varð fyrir eldingu í vináttuleik 2 FLO FC Bandung og FBI Subang á Siliwangi vellinum í Bandung á vestur-Jövu.
Raharja var fluttur á spítala þar sem hann lést. Hann var 35 ára.
Þetta er í annað sinn á síðustu tólf mánuðum sem fótboltamaður í Indónesíu verður fyrir eldingu.
Það gerðist einnig í leik U-13 ára liða í Bojonegoro á austur-Jövu í fyrra. Sá sem varð fyrir eldingunni lifði af.