Højlund gæti slegið met um helgina Sindri Sverrisson skrifar 16. febrúar 2024 15:15 Rasmus Højlund hefur verið sjóðheitur fyrir Manchester United undanfarið. EPA-EFE/ADAM VAUGHAN Danski framherjinn Rasmus Højlund gæti slegið met í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á sunnudaginn ef hann skorar fyrir Manchester United gegn Luton.
Højlund þurfti fimmtán leiki til að skora sitt fyrsta mark í deildinni, sem kom á öðrum degi jóla í sigri á Aston Villa, en hefur núna skorað í fimm deildarleikjum í röð. Hann er næstyngstur í sögunni til að ná því að skora í fimm leikjum í röð í ensku úrvalsdeildinni, á eftir Frakkanum Nicolas Anelka. Højlund er 21 árs og 12 daga en Anelka var aðeins 19 ára og 239 daga. En ef Højlund skorar gegn Luton verður hann sá yngsti til þess að skora í sex leikjum í röð í ensku úrvalsdeildinni. Það met er núna í eigu Joe Willock sem var 21 árs og 272 daga þegar hann skoraði sjötta leikinn í röð árið 2021. Þó að Højlund hafi verið lengi í gang í ensku úrvalsdeildinni þá raðaði hann inn mörkum fyrir United í Meistaradeild Evrópu í haust. Hann skoraði þar fimm mörk í sex leikjum og er enn einn af markahæstu mönnum keppninnar í vetur. Højlund skoraði einnig mörg mörk fyrir danska landsliðið í undankeppni EM á síðasta ári eða sjö talsins, þar af ekkert úr víti, og varð í fimmta sæti á lista yfir markahæstu menn undankeppninnar.
Enski boltinn Mest lesið Rauðu djöflarnir verja ekki bikarinn Enski boltinn Tilkynnti að hún væri hætt í hjartnæmu viðtali Handbolti Píla festist í fæti keppanda Sport Sjáðu Benóný stimpla sig inn hjá stuðningsmönnum Stockport Enski boltinn Orri Steinn og félagar steinlágu í Katalóníu Fótbolti Orðinn þjálfari Galdurs eftir að hafa verið rekinn í beinni Fótbolti Munu taka hart á því hversu lengi markvörður heldur á boltanum Fótbolti Var í mótorhjólagengi, sat inni en er nú kominn á Opna breska Golf Welbeck skaut Brighton áfram Enski boltinn Kenndi hárvörum um í umdeildu jafntefli Sport Fleiri fréttir Hamrarnir hentu frá sér tveggja marka forystu gegn Arsenal Kristian Nökkvi með mark og stoðsendingu Chelsea tapaði óvænt stigum á meðan Hlín tapaði fyrir Rauðu djöflunum Rauðu djöflarnir verja ekki bikarinn Kristianstad byrjar vel í bikarnum Orri Steinn og félagar steinlágu í Katalóníu Pedersen með tvö og Valsmenn í undanúrslit Draumainnkoma Dags Welbeck skaut Brighton áfram Sjáðu Benóný stimpla sig inn hjá stuðningsmönnum Stockport Orðinn þjálfari Galdurs eftir að hafa verið rekinn í beinni Munu taka hart á því hversu lengi markvörður heldur á boltanum Sjáðu: Glæsilegt sigurmark Jóhanns Bergs gegn Ronaldo Mateta líður vel þrátt fyrir tæklingu í andlitið Hákon Arnar kom inn af bekknum í erfiðum leik í París Real Madríd varð af mikilvægum stigum í titilbaráttunni Jafnt í toppslagnum á Ítalíu Man City sterkari í síðari hálfleik og komið áfram „Nýja hetjan“ Benóný Breki tryggði sigurinn með sínum fyrstu mörkum Venezia hélt jöfnu gegn Atalanta Fyrrverandi markvörður Hattar lagði upp mark í toppslagnum Fólskulegt brot markvarðar Milwall þegar Palace fór áfram Annað bikarævintýri hjá Júlíusi? „Þakka Alberti frá dýpstu hjartarótum“ Auðun tekur við Þrótti Vogum Messi var óánægður hjá PSG „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Hefur Amorim bætt Man United? Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Asensio skaut Villa áfram Sjá meira