Anna Júlía Íslandsmeistari í holukeppni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. júní 2024 10:53 Verðlaunahafarnir á Íslandsmótinu í holukeppni kvenna. Talið frá vinstri: Eva Kristinsdóttir, Anna Júlía Ólafsdóttir, Fjóla Margrét Viðarsdóttir. Golfsamband Íslands/[email protected] Anna Júlía Ólafsdóttir úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar tryggði sér sigur á Íslandsmótinu í holukeppni í ár. Mótið fór fram á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar og lauk í gær.
Anna Júlía vann Fjólu Margréti Viðarsdóttur úr Golfklúbbi Suðurnesja í úrslitaleiknum. Hún var sex holum yfir þegar fimm holur voru eftir og vann því titilinn á aðeins þrettán holum. Þetta er fyrsti Íslandsmeistaratitill Önnu Júlíu á ferlinum í einstaklingskeppni en hún er 24 ára og var að ljúka námi í bandarískum háskóla, þar sem hún lék golf samhliða náminu. Anna kláraði nám í grafískri hönnun og markaðsfræði í Purdue Fort Wayne í Indiana fylki. Eva Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar vann Þóru Sigríði Sveinsdóttur úr GS, 3&2, í leiknum um þriðja sætið. Mótið var það 36. í röðinni frá því að fyrst var keppt árið 1988. Keppt verður í karlaflokki á Íslandsmótinu í holukeppni dagana 22.-24. júní á Garðavelli á Akranesi. Í fyrri hluta Íslandsmótsins í holukeppni, sem fram fór föstudaginn 14. júní var leikinn 36 holu höggleikur án forgjafar, þar sem sextán efstu keppendurnir komust áfram í útsláttarkeppni. Að höggleik loknum voru leiknar fjórar umferðir í holukeppni.
Golf Mest lesið Hrærð yfir viðbrögðum Þóris: „Fæ bara kökk í hálsinn“ Handbolti Leikmaður Man. United neitaði að klæðast regnbogalituðum jakka Enski boltinn Breyta fótboltareglunum vegna Arteta Enski boltinn Luke Shaw algjörlega niðurbrotinn Enski boltinn Rondey rakaði af sér hárið til stuðnings Skúla Körfubolti Amorim varar stuðningsmenn United við: Óveðrið mun koma Enski boltinn Reiddist fréttamanni: Veist við hvern þú ert að tala Enski boltinn Hunsaði varnaðarorðin og skrifaði aftur um ást Jesú á fyrirliðabandið sitt Enski boltinn Van Dijk boðinn nýr samningur Enski boltinn Fékk ekki að fara inn á út af pínlegu klúðri Fótbolti Fleiri fréttir Vill verðlaunafé á Ryder Cup til að styrkja góð málefni Meiddur Tiger segist enn hafa eldmóðinn Fór holu í höggi yfir húsið sitt Vann hæsta verðlaunafé sem golfkona hefur fengið McIlroy skaut niður dróna „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Sjá meira