Þríþrautarkeppnin fékk grænt ljóst í nótt eftir mælingar á bakteríum í Signu. Sundhlutinn fer fram í Signu en síðan taka við hjólreiðar og hlaup um París.
Æfingum hafði verið frestað á sunnudag og mánudag sem og karlakeppninni í gær vegna of mikils magns af E. Coli og fleiri hættulegum bakteríum í ánni.
Organisers have cleared the Olympic women's and men's triathlons to go ahead today after the latest Seine river water tests showed lower levels of bacteriahttps://t.co/GRmDHsSryl
— RTÉ News (@rtenews) July 31, 2024
Við tók hálfgerður farsi þar sem jafnvel var talað um frekari frestanir eða jafnvel að fella niður sundhlutann og breyta þríþraut í tvíþraut. Sem betur fer verður ekkert af því.
Báðar keppnirnar fara fram í dag og hefst kvennakeppnin klukkan 6.00 að íslenskum tíma. Karlakeppnin tekur síðan við strax á eftir.
Nýjustu mælingarnar voru framkvæmdar klukkan 3.20 í nótt og Alþjóða þríþrautarsambandið samþykkti í framhaldinu að gefa grænt ljós á keppnina.
Allskonar tilfinningar í gangi
Þetta er stór stund fyrir Guðlaugu Eddu sem tjáði sig um keppnina á samfélagsmiðlum í gær.
„Löng og erfið vegferð að mínum fyrstu Ólympíuleikum. Allskonar tilfinningar í gangi. Ég er mjög stolt af því að hafa komist alla þessa leið í gegnum allskyns mótlæti, erfiðleika og að þjösnast áfram oft á tíðum, ein án fjármagns eða annarrar aðstoðar í keppnum og við æfingar,“ skrifaði Guðlaug Edda á Instagram.
„Langar að channel-a mitt innra barn á morgun í keppninni, því þar byrjaði draumurinn. Ég gef Lífið mitt í íþróttir og í staðinn hef ég fengið lífið sjálft. Ég myndi ekki skipta þessu út fyrir neitt. Bara að hafa gaman og reyna að ná öllu út úr mér því ég elska þetta,“ skrifaði Guðlaug Edda.
„Ég hef gert mitt besta í undirbúningnum með þau sem spil sem ég hafði í hendi og það eina sem ég get beðið sjálf mig um er að sýna styrk, þrautseigju og hafa gaman. Takk, takk takk. Með ást frá París - Guðlaug,“ skrifaði Guðlaug Edda