Verður meðal stærstu hluthafa og tekur við stjórnarformennsku Atli Ísleifsson skrifar 29. ágúst 2024 12:24 Håkon André Berg verður meðal stærstu hluthafa félagsins. GeoSalmo Håkon André Berg verður nýr starfandi stjórnarformaður landeldisfyrirtækisins GeoSalmo. Samhliða því að taka við stjórnarformennsku fjárfestir Håkon í félaginu og verður meðal stærstu hluthafa félagsins.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá GeoSalmo. Þar segir að Håkon hafi áður verið forstjóri norska landeldisfyrirtækisins Salmon Evolution frá fyrstu skrefum þess og þar til eldisstöðin hafi komist í fullan rekstur. „Salmon Evoulution er stærsta landeldi Noregs og í fararbroddi í landeldi á laxi á heimsvísu. Auk þess að hafa yfigripsmikla þekkingu af landeldi hefur Håkon mikla reynslu úr norsku atvinnulífi, hefur starfað við fjárfestingar, viðskiptaþróun og ráðgjöf auk setu í stjórnum fyrirtækja. Håkon kemur til GeoSalmo úr starfi forstjóra Skeie teknologi sem er rótgróið fjárfestingarfyrirtæki í Noregi. Það er mikil viðurkenning fyrir GeoSalmo og íslenskt landeldi að fá jafnreyndan aðila úr greininni og Håkon er til þess að taka þátt í uppbyggingu og þróun hennar hér á landi. Reynsla hans mun vega þungt við að raungera metnaðarfull áform GeoSalmo um uppbyggingu hátæknilandeldis í Þorlákshöfn. Sem starfandi stjórnarformaður mun Håkon vinna náið með stjórnendateymi GeoSalmo í þeirri uppbyggingu sem framundan er á næstu árum,“ segir í tilkynningunni. Um GeoSalmo segir að félagið áformi að reisa að minnsta kosti 33.000 tonna laxeldisstöð á landi við Þorlákshöfn. Fyrirtækið stefni að því að verða leiðandi í landeldi á Íslandi með áherslu á að starfsemi þess sé í sátt við umhverfi og samfélag. Fyrirtækið hefur tryggt sér land, lokið umhverfismati, tryggt sér langtíma orkusamning við Orku Náttúrunnar (ON Power) og lokið öðrum undirbúningi sem gert hefur því kleift að hefja framkvæmdir.
Vistaskipti Fiskeldi Landeldi Ölfus Mest lesið Trump boðar „frelsun“ Bandaríkjanna Viðskipti erlent Björgólfur tapaði 150 milljörðum milli ára Viðskipti innlent Einsleitni er ekki málið: „Ætlum við að gera þetta aftur?“ Atvinnulíf Bakkavör metin á 200 milljarða í yfirtöku Viðskipti innlent Stjórnin telur RÚV enn vera of skuldsett Viðskipti innlent Narfi frá JBT Marel til Kviku Viðskipti innlent Vilja minnka líkurnar á því að vinna í Lottóinu Viðskipti innlent Sólveig Ása nýr framkvæmdastjóri Krafts Viðskipti innlent Milljarður í afgang í Garðabæ Viðskipti innlent Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Samstarf Fleiri fréttir Jón Haukur ráðinn svæðisstjóri Ceedr Sólveig Ása nýr framkvæmdastjóri Krafts Björgólfur tapaði 150 milljörðum milli ára Stjórnin telur RÚV enn vera of skuldsett Bakkavör metin á 200 milljarða í yfirtöku Narfi frá JBT Marel til Kviku Milljarður í afgang í Garðabæ Útflutningur gefur eftir en einkaneyslan stígur fram á sviðið Vilja minnka líkurnar á því að vinna í Lottóinu Besta rekstrarár frá opnun Hörpu Hneykslaðist á „óútfærðum afkomubætandi aðgerðum“ Deila um þvottahús stöðvar ekki Hreint í bili Eldisfiskur fluttur út fyrir 54 milljarða króna Ræðst í byggingu átta húsa í Hvammsvík Trúir ekki að menn loki fiskvinnslu til að mótmæla veiðigjöldum „Þetta er afnotagjald“ Play komið með flugrekstrarleyfi á Möltu Jón Ólafur í framboði til formanns SA Eigendaskipti hjá Fótbolta.net Feðgarnir nú aftur einu hluthafarnir í Eyri Invest Eyjólfur Árni hættir hjá SA Hagnaðist um tvo milljarða: Ljóst að greinin megi ekki við hækkunum Verðbólga heldur áfram að hjaðna Versta sviðsmyndin sé að lenda á milli Evrópu og Bandaríkjanna í tollastríði Íhuga að sameina lífeyrissjóði „Reiðarslag fyrir þau þorp þar sem stundaðar eru veiðar og vinnsla“ Tollastríðið gæti vel haft áhrif á lífskjör almennings Salóme tekur við af stofnanda Ísorku Helgi ráðinn sölustjóri Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Sjá meira