Sport

Syntu saman­lagt næstum því 24 hringi í kringum Ís­land

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslensk börn voru dugleg að taka þátt í átakinu í ár.
Íslensk börn voru dugleg að taka þátt í átakinu í ár. ÍSÍ

Íþróttasamband Íslands hefur gert upp landsátakið Syndum sem lauk 30. nóvember síðastliðinn en fjallað er um það á heimasíðu sambandsins.

Átakið er viðburður undir Íþróttaviku Evrópu en markmið hennar er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings.

Átakið hófst með setningu í Ásvallalaug þann 1. nóvember. Um er að ræða sameiginlegt átak Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og Sundsambands Íslands (ÍSS), sem vilja með þessu hvetja landsmenn til meiri hreyfingar í gegnum sundið.

31.271 km

Til þess að taka þátt í átakinu skráðu þátttakendur sig til leiks á heimasíðu Syndum og skráðu metrana sem þeir syntu. Samtals lögðu landsmenn um 31.271 km að baki, sem samsvarar tæplega 24 hringjum (23,7) í kringum Ísland. Til samanburðar voru syntir 26.850 km á síðasta ári eða rúmlega 20 hringir í kringum Ísland. Það var því talsverð bæting á milli ára.

Alls tóku sautján grunnskólar og fimm sundfélög og/eða sunddeildir þátt í átakinu í ár. Í tilefni af Alþjóðlegum degi barnsins þann 20. nóvember fékk ÍSÍ líka UNICEF í lið með sér.

Þrír skólar verðlaunaðir

Nemendur og iðkendur sundfélaga sem voru í sundi í nóvember voru hvattir til að synda fyrir hreinu vatni, handa börnum sem búa við erfið skilyrði þar sem skortur er á hreinu vatni. Að því loknu voru þrír vinningshafar dregnir úr þeim skólum og sundfélögum sem skráðu sig til leiks. Vinningshafarnir eru: Stekkjaskóli á Selfossi, Skarðshlíðarskóli í Hafnarfirði og Sunddeild Hvatar á Blönduósi.

Þau fá hvert viðurkenningu frá UNICEF fyrir að hafa gefið 100.000 vatnshreinsitöflur, sem geta hreinsað 500.000 lítra af hreinu vatni, sem samsvarar vatnsmagni í 25 metra sundlaug.

Krakkarnir i SH öflug

Sundfélag Hafnarfjarðar tók átakið með trompi. Tæplega 179 þátttakendur skráðu metrana sína og syntu yfir tíu þúsund km eða um átta hringi í kringum Ísland. Innifalið í þeirri tölu eru allar æfingar í djúpu lauginni og það sem skráð var á sundmótum. Sú laug sem var með flesta skráða metra var Ásvallalaug í Hafnarfirði með 11.580,74 km. Næsta sundlaug á eftir var Vatnaveröld í Reykjanesbæ með skráða 8.954,26 km. Sundfélag Hafnarfjarðar á sannarlega sinn þátt í að koma Ásvallalaug á toppinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×