Lífið

Ó­dýr kvöld­matur að hætti Lindu Ben

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Linda Ben deildi uppskriftinni með fylgjendum sínum á Instagram og á vefsíðu sinni Lindaben.is
Linda Ben deildi uppskriftinni með fylgjendum sínum á Instagram og á vefsíðu sinni Lindaben.is

Matarbloggarinn Linda Benediktsdóttir útbjó ódýran og ljúffengan kvöldverð sem ætti að hitta í mark hjá flestum aldurshópum. Hvernig hljómar klassíkur grjónagrautur og litríkt túnfisksalat á köldum vetrardegi? Uppskriftina deildi hún með fylgjendum sínum á Instagram og á vefsíðunni Lindaben.is

Klassískur grjónagrautur

Hráefni:

5 dl hrísgrjón t.d. jasmín eða grautargrjón

1 1/2 l nýmjólk

1 tsk vanilla

1 - 1 1/2 tsk salt

1 dl rúsínur

Kanilsykur (1 dl sykur + 1 msk kanill)

Aðferð:

Skolið hrísgrjónin og setjið í pott ásamt 0,5 l nýmjólk, látið suðuna koma upp og leyfið að malla rólega og hrærið mjög reglulega í.

Bætið mjólk í eftir þörfum þar til grónin eru orðin mjúk í gegn.

Munið að hræra alltaf mjög reglulega í með trésleif.

Bætið rúsínunum út í og leyfið þeim að sjóða með í u.þ.b. 5-10 mín.

Berið fram með kanilsykri og örlítið af meira mjólk.


Litríkt túnfisksalat með kotasælu

Hráefni:

184 g túnfiskur frá Ora í vatni

4 egg

200 g kotasæla

1 msk mæjónes

1/2 agúrka

1/2 rauð paprika

1 lítið (eða 1/2) gult epli

Salt og pipar

Aðferð:

Sjóðið eggin þar til þau eru harðsoðin (u.þ.b. 9 mín)

Hellið vatninu af túnfiskinum og setjið í skál ásamt kotasælu, mæjónesi, smátt saxaðari agúrku, papriku og epli.

Takið skurnina af eggjunum og skerið þau niður í litla bita með eggjaskera.

Bætið út í salatið og hrærið öllu saman.

Kryddið til með salti og pipar






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.