Fótbolti

Mikael Egill semur við Genoa en klárar tíma­bilið í Fen­eyjum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mikael Egill Ellertsson skiptir um lið í sumar.
Mikael Egill Ellertsson skiptir um lið í sumar. getty/Giuseppe Maffia

Íslenski landsliðsmaðurinn Mikael Egill Ellertsson ku vera búinn að semja við Genoa og gengur í raðir liðsins í sumar. Hann klárar þó tímabilið með Venezia.

Ítalski blaðamaðurinn Gianluca Di Marzio greinir frá þessu. Samkvæmt honum borgar Genoa 3,5 milljónir evra fyrir Mikael, eða rúmlega 512 milljónir íslenskra króna. Liðið lánar hann svo strax aftur til Venezia þar sem hann klárar tímabilið.

Mikael gengst undir læknisskoðun hjá Genoa í dag. Auk hans hefur liðið keypt kamerúnska miðjumanninn Jean Onana frá Besiktas.

Mikael, sem er 22 ára, hefur verið í byrjunarliðinu í síðustu sjö leikjum Venezia í ítölsku úrvalsdeildinni. Hann hefur alls leikið 21 deildarleik í vetur og skorað tvö mörk. Mikael gekk í raðir Venezia frá Spezia fyrir tveimur árum.

Venezia er í nítjánda og næstneðsta sæti deildarinnar með sextán stig. Genoa er í 12. sætinu en liðinu hefur gengið ágætlega eftir að Patrick Vieira tók við því í nóvember.

Genoa hefur góða reynslu af Íslendingum en Albert Guðmundsson er samningsbundinn liðinu en er á láni hjá Fiorentina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×