Leikmannahópinn má sjá hér neðst í greininni en mesta athygli vekur endurkoma Dagnýjar Brynjarsdóttur og Andreu Ránar Hauksdóttur.
Ísland á fyrir höndum fyrstu tvo leiki sína á nýrri leiktíð í Þjóðadeildinni og fara þeir báðir fram erlendis. Liðið sækir Sviss heim föstudaginn 21. febrúar og mætir svo Frakklandi 25. febrúar.
Upptöku frá blaðamannafundi KSÍ má sjá hér að neðan.
Fjórða liðið í riðli Íslands er Noregur sem Ísland tekur svo á móti í fyrsta heimaleik sínum 4. apríl.
Liðin leika í A-deild og kemst efsta liðið í fjögurra liða úrslit Þjóðadeildarinnar. Liðið í 2. sæti heldur sér einnig í A-deild, liðið í 4. sæti fellur í B-deild og liðið í 3. sæti fer í umspil við lið úr B-deild um sæti í A-deild. Ísland endaði í 2. sæti síns riðils í A-deildinni á síðustu leiktíð.
Leikirnir í Þjóðadeildinni eru jafnframt góður undirbúningur fyrir EM sem fram fer í Sviss í júlí. Ísland er þar einmitt, líkt og í Þjóðadeildinni, í riðli með Svisslendingum og Norðmönnum en fjórða liðið þar er svo Finnland.
Dagný Brynjarsdóttir, næstmarkahæsta landsliðskona Íslands frá upphafi, kemur á ný inn í landsliðshópinn í fyrsta sinn síðan hún eignaðist sitt annað barn fyrir um ári síðan. Hún hafði lýst yfir óánægju með samskiptaleysi af hálfu Þorsteins. Auk Dagnýjar þá snýr Andrea Rán Hauksdóttir aftur í landsliðshópinn. Andrea, sem gekk í raðir bandaríska félagsins Tampa Bay Sun síðasta sumar, lék síðast landsleiki árið 2021.
Selma Sól Magnúsdóttir og Hildur Antonsdóttir eru ekki með vegna meiðsla. Þorsteinn sagði á blaðamannafundi í dag að Selma yrði frá keppni næstu 6-8 vikurnar eftir aðgerð, og Hildur næstu 3-4 vikurnar eftir tognun í læri. Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir er sömuleiðis ekki með núna en Guðný Árnadóttir snýr aftur eftir meiðsli.
Landsliðshópur Íslands:
Telma Ívarsdóttir - Breiðablik - 11 leikir
Fanney Inga Birkisdóttir - Valur - 7 leikir
Cecilía Rán Rúnarsdóttir - Inter Milan - 11 leikir
Guðný Árnadóttir - Kristianstads DFF - 32 leikir
Ingibjörg Sigurðardóttir - Bröndby IF - 65 leikir, 1 mark
Glódís Perla Viggósdóttir - Bayern Munich - 128 leikir, 11 mörk
Guðrún Arnardóttir - FC Rosengard - 41 leikur, 1 mark
Natasha Moraa Anasi - Valur - 6 leikir, 1 mark
Sædís Rún Heiðarsdóttir - Valerenga - 9 leikir
Sandra María Jessen - Þór/KA - 43 leikir, 6 mörk
Berglind Rós Ágústsdóttir - Valur - 12 leikir, 1 mark
Alexandra Jóhannsdóttir - ACF Fiorentina - 47 leikir, 6 mörk
Hildur Antonsdóttir - Madrid CFF - 18 leikir, 2 mörk
Katla Tryggvadóttir - Kristianstads DFF - 1 leikur
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir - Bayer 04 Leverkusen - 43 leikir, 9 mörk
Selma Sól Magnúsdóttir - Rosenborg BK Kvinner - 41 leikur, 4 mörk
Amanda Jacobsen Andradóttir - FC Twente - 20 leikir, 2 mörk
Hafrún Rakel Halldórsdóttir - Bröndby IF - 12 leikir, 1 mark
Sveindís Jane Jónsdóttir - VfL Wolfsburg - 40 leikir, 12 mörk
Hlín Eiríksdóttir - Kristianstads DFF - 40 leikir, 6 mörk
Emilía Kiær Ásgeirsdóttir - FC Nordsjælland - 2 leikir
Diljá Ýr Zomers - OH Leuven - 16 leikir, 2 mörk
Bryndís Arna Níelsdóttir - Växjö DFF - 6 leikir, 1 mark