Mikil spenna var í loftinu fyrir leikinn í Bell Centre í Montreal í fyrradag. Kanadískir áhorfendur púuðu á meðan þjóðsöngur Bandaríkjanna var leikinn.
Eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti sagðist ætla að leggja 25 prósent tollgjöld á innflutningsvörur frá Kanada og viðraði hugmyndir um að gera landið að 51. ríki Bandaríkjanna hefur verið púað meðan bandaríski þjóðsöngurinn hefur verið leikinn fyrir leiki í NHL og NBA í Kanada.
Andrúmsloftið í leiknum í gær var rafmagnað og leikmenn voru greinilega sem hengdir upp á þráð. Eftir aðeins tvær sekúndur voru tveir leikmenn, Brandon Hagel hjá Kanada og Bandaríkjamaðurinn Matthew Tkachuk, sendir í kælingu eftir að hafa látið hnefana tala.
Skömmu síðar reif bróðir Tkachuks, Brady, af sér hanskana og byrjaði að slást við Kanadamanninn Sam Bennett. Loks slógust JT Miller og Colton Parayko en þrenn slagsmál brutust út á fyrstu níu sekúndum leiksins.
Canada v USA hockey:
— HLTCO (@HLTCO) February 16, 2025
Announcer: "In the spirit of this great game that unites everyone that you kindly respect the anthems and the players that represent each country."
Canada fans roundly boo the US anthem.
Mass fight 2 seconds in.
Outstanding.
pic.twitter.com/ftoZ3poddp
Báðir þjálfarar báru blak af æsingamönnunum eftir leikinn og sögðu að lætin væru til marks um það hversu mikið var í húfi. Þetta var í fyrsta sinn í áratug sem leikmenn úr NHL mætast í landsleik. Venjulega sleppa NHL-leikmenn að taka þátt á heimsmeistaramótum og Vetrarólympíuleikum.
Bandaríkin unnu leikinn, 3-1, og tryggðu sér sæti í úrslitum 4 Nations Face-Off. Í dag kemur í ljós hverjum bandaríska liðið mætir í úrslitaleiknum á fimmtudaginn. Síðustu leikirnir í riðlakeppninni fara fram í dag. Bandaríkjamenn mæta þá Svíum og Kanadamenn og Finnar eigast við.