Lífið

Alheimsdraumurinn: Sveppa tókst það sem Pétri tókst ekki

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Sveppi sýndi mátt sinn og megin í þessu ógnvekjandi verkefni.
Sveppi sýndi mátt sinn og megin í þessu ógnvekjandi verkefni.

Sverrir Þór Sverrisson sýndi liðsfélaga sínum í Alheimsdraumnum Pétri Jóhanni Sigfússyni úr hverju hann var gerður þegar hann tók sig til og hékk út úr bíl hvers ökumaður keyrði á ógnarhraða og „driftaði“ á eins og hann ætti lífið að leysa.

Þetta er meðal þess sem sjá má í fyrsta þætti af Alheimsdraumnum, sjónvarpsþætti þar sem þeir Sveppi og Pétur ásamt Audda og Steinda skipa tvö lið sem þeysast um heiminn og leysa ævintýralega skemmtilegar þrautir. Þátturinn verður frumsýndur á Stöð 2 annað kvöld og fá þeir Pétur og Sveppi meðal annars það verkefni að hanga í bíl á ferð.

Sat bara stjarfur

Það vita allir að Pétur Jóhann er einn fyndnasti maður landsins en hann er langt frá því sá hugrakkkasti. Sama hvað hann reyndi að mana sig í það komst hann aldrei með líkamann út úr bílnum.

„Vá! Ég var bara stjarfur þarna inni!“ segir Pétur Jóhann meðal annars í þættinum. Dekkin á bílnum ónýt eftir þeysireiðina. „Ég reyndi að pikka í hann einu sinni, á ég að setja hausinn út? Hann alveg: Já já, gerðu það bara! Ég væri til í að sjá hvort þú náir þessu, það eru svo miklir kraftar í þessu.“

Eftir snögg dekkjaskipti, vélarstillingu og bílstjóraskipti var komið að Sveppa að sanna sig. Sjón er sögu ríkari.

Áður hefur Auðunn Blöndal sagt í samtali við Vísi að óhætt sé að fullyrða að nýjasta serían sé sú klikkaðasta hingað til en fimm ár eru síðan strákarnir héldu síðast utan í Suður-Ameríska Draumnum. Meðal landa sem strákarnir ferðast til að þessu sinni eru Nýja-Sjáland, Filippseyjar og Ástralía.


Tengdar fréttir

Lítil þolinmæði fyrir hrekk Audda

Steinþór Hróar Steinþórsson sjónvarpsmaður betur þekktur sem Steindi jr. er ekki að flytja úr Mosfellsbænum og í Garðabæ líkt og fram kemur í nýjasta tölublaði Mosfellingsins. Þar lítur út fyrir að um viðtal við Steinda sé að ræða þegar raunin er sú að stríðnispúkinn Auðunn Blöndal heldur þar á penna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.