Fótbolti

Alisson: „Lík­lega besti leikur lífs míns“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Virgil van Dijk faðmar markvörðinn sinn Alisson í leikslok en sá brasiíski var magnaður í markinu.
Virgil van Dijk faðmar markvörðinn sinn Alisson í leikslok en sá brasiíski var magnaður í markinu. AP/Christophe Ena

Alisson Becker átti algjöran stórleik í kvöld þegar Liverpool sótti 1-0 sigur til Parísar í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Brasilíski markvörðurinn bjargaði Liverpool hvað eftir annað og liðið skoraði síðan sigurmarkið eftir langa sendingu fram völlinn frá Alisson.

Frammistaðan Alisson var eins sú besta hjá markverði í Meistaradeildinni, hvort sem við tökum þetta tímabil eða alla söguna. Hann sjálfur var líka á því að hann hafi ekki oft spilað betur.

Alisson varð alls níu skot í leiknum og mörg þeirra úr algjörum dauðafærum. París Saint Germain skoraði ekki hjá honum þrátt fyrir að vera með 1,82 í áætluðum mörkum (xG).

„Knattspyrnustjórinn okkar var að segja okkur hvað þetta yrði erfitt og hversu góðir þeir eru með boltann. Við urðum að vera tilbúnir að þjást því það eru svo miklir hæfileikar í þeirra liði,“ sagði Alisson í sjónvarpsviðtali eftir leikinn.

„Við unnum vel í þessum leik en þeir fengu vissulega færin. Það var samt alltaf einhver hjá okkur mættur til að trufla þann hjá þeim sem var kominn í færi. Það gerði mitt starf auðveldara,“ sagði Alisson.

„Liðið lagði gríðarlega mikið á sig í kvöld og svo kemur Harvey inn og skorar sigurmarkið. Þetta er falleg saga og frábært kvöld. Mjög erfitt kvöld en með góðum endi,“ sagði Alisson.

Alisson var spurður um hvort að þetta hafi verið besta frammistaðan hans á tímabilinu. „Líklega besti leikur lífs míns,“ svaraði Alisson.

Harvey Elliott var líka í viðtali og hrósaði brasilíska markverðinum.

„Ég á eiginlega engin orð. Þetta gæi er ótrúlegur og sá besti í heimi. Hann heldur okkur inni í svo mörgum leikjum. Í kvöld var tækifæri fyrir mig að launa þessum manni aðeins fyrir allt það sem hann hefur gert. Ég veit ekki hvar við værum án hans en þetta var samt frábær liðsframmistaða,“ sagði Harvey Elliott.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×