Fótbolti

Ómögu­legt fyrir Arnar að velja Gylfa

Aron Guðmundsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson í leik með íslenska landsliðinu
Gylfi Þór Sigurðsson í leik með íslenska landsliðinu vísir/Anton

Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari, segir aðspurður um ákvörðun sína að velja Gylfa Þór Sigurðsson ekki í landsliðshóp Íslands fyrir komandi verkefni, það nær ómögulegt fyrir sig að velja leikmann sem spilar á Íslandi í verkefni í mars.

Fyrr í dag var fyrsti landsliðshópur íslenska landsliðsins undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar opinberaður. Framundan einvígi gegn Kosovó í umspili fyrir B-deild Þjóðadeildarinnar.

Gylfi Þór Sigurðsson, sem nýlega var keyptur til Víkings Reykjavíkur frá Val, er ekki í landsliðshópnum í komandi leikjum.

„Marsverkefni fyrir leikmenn sem spila á Íslandi er ekki framtíðin fyrir okkur. Því miður,“ sagði Arnar varðandi stöðu Gylfa Þórs, leikmanns Víkings Reykjavíkur og landsliðið. „Við erum á allt annarri blaðsíðu hvað það varðar. Nógu erfitt er fyrir að spila á Íslandi og komast í landsliðið, hvort sem það væri þá í júní eða september.

Í mars sé það ómögulegt.

„Liðin eru á þeim tímapunkti á allt öðru æfingastigi en gengur og gerist út í heimi. Auðvitað vill maður gefa leikmanni eins og Gylfa ákveðinn séns og tækifæri, en þegar maður hugsar þetta lengra þá er þetta ekki alveg rétti tímapunkturinn fyrir hann heldur.“

Ekki sé ýkja langt síðan að Gylfi hafi verið að glíma við meiðsli. Arnar sér stöðuna þannig að betra væri fyrir Gylfa að aðlagast aðstæðum hjá hans nýja félagi í Víkinni og geti þar komið sér í sitt besta stand og þar með gert tilkall í sæti í landsliðinu í næsta verkefni eftir leikina gegn Kosovó.


Tengdar fréttir

Orri nýr fyrirliði Íslands

Orri Óskarsson, hinn tvítugi framherji Real Sociedad, er orðinn nýr fyrirliði íslenska landsliðsins í fótbolta. Þetta tilkynnti Arnar Gunnlaugsson, nýr landsliðsþjálfari, í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×