Fótbolti

Orri Steinn verður ekki yngsti fyrir­liðinn en hann er ná­lægt því

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Orri Steinn Óskarsson fagnar hér marki með íslenska landsliðinu en í næsta landsleik verður hann kominn með fyrirliðabandið.
Orri Steinn Óskarsson fagnar hér marki með íslenska landsliðinu en í næsta landsleik verður hann kominn með fyrirliðabandið. AFP/Attila KISBENEDEK

Orri Steinn Óskarsson er nýr fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í fótbolta og það þrátt fyrir að vera ekki búinn að halda upp á 21 árs afmælið sitt. Hann nær þó hvorki metinu yfir yngsta fyrirliða Íslands í karlalandsleik, hvorki í vináttuleik né í keppnisleik.

Arnar Gunnlaugsson, nýr þjálfari íslenska karlalandsliðsins, tilkynnti í gær að hann ætlaði að geta Orra Stein að fyrirliða þar sem hann væri leiðtogi nýju kynslóðarinnar í liðinu.

Það að hann sé að fá fyrirliðabandið fyrir 21 árs afmælið sitt, var full ástæða til að skoða sögubæknurnar. Metin falla ekki því þau verða áfram í eigu þeirra Eyleifs Hafsteinssonar og Ásgeirs Sigurvinssonar.

Eyleifur Hafsteinsson er hér í miðjunni á mynd sem var tekin fyrir æfingu landsliðsins á Parken. Hægra megin við Eyleif er Hermann Gunnarsson.Timarit.is/Tíminn

Eyleifur er yngsti fyrirliði Íslands í A-landsleik karla. Hann var aðeins tuttugu ára, tveggja mánaða og fjórtán daga þegar hann var fyrirliði Íslands í vináttulandsleik á móti Bretlandi á Laugardalsvellinum 14. ágúst 1967. Bretarnir unnu leikinn 3-0 en þetta var áttundi landsleikur Eyleifs.

Eyleifur var líka fyrirliði í næsta leik á eftir sem er einn frægasti leikur í sögu Íslands þegar liðið tapaði 14-2 á móti Dönum í vináttulandsleik á Parken 23. ágúst 1967. Eyleifur átti eftir að spila 26 landsleiki en var bara fyrirliði í þessum tveimur leikjum.

Mynd af Ásgeiri Sigurvinssyni heilsa fyrirliða Belga fyrir leikinn. Myndin birtist á forsíðu Vísis.timarit.is/Vísir

Ásgeir Sigurvinsson er síðan yngsti fyrirliði Íslands í keppnislandsleik. Hann var aðeins tuttugu ára, þriggja mánaða og 29 daga þegar hann var fyrirliði Íslands í leik á móti Belgíu í undankeppni EM 6. september 1975. Belgarnir unnu þann leik 1-0 en þetta var fjórtándi landsleikur Ásgeirs.

Ásgeir var einnig fyrirliði í tveimur lansleikjum í undankeppni HM haustið 1977 en hann leiddi íslenska landsliðið sjö sinnum út á völlinn sem fyrirliði. Einn af þeim var síðasti landsleikur hans þegar Ísland vann 2-0 sigur á Tyrkjum á Laugardalsvellinum 20. september 1989.

  • Yngstu fyrirliðar íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu:
  • 20 ára - 2 mánaða og 14 daga
  • Eyleifur Hafsteinsson á móti Bretlandi 14. ágúst 1967 (vináttuleikur)
  • 20 ára - 2 mánaða og 23 daga
  • Eyleifur Hafsteinsson á móti Danmörku 23. ágúst 1967 (vináttuleikur)
  • 20 ára - 3 mánaða og 29 daga
  • Ásgeir Sigurvinsson á móti Belgíu 6. september 1975 (Undankeppni EM)
  • 20 ára - 6 mánaða og 20 daga
  • Ef Orri Steinn Óskarsson verður fyrirliði á móti Kósóvó (Umspil Þjóðadeildar)
  • 20 ára - 11 mánaða og 13 daga
  • Gísli Torfason á móti Færeyjum 23. júní 1975 (vináttuleikur)
  • 22 ára - 3 mánaða og 23 daga
  • Ásgeir Sigurvinsson á móti Hollandi 31. ágúst 1977 (Undankeppni HM)
  • 22 ára - 3 mánaða og 26 daga
  • Ásgeir Sigurvinsson á móti Belgíu 3. september 1977 (Undankeppni HM)
  • 23 ára - 1 mánaða og 5 daga
  • Aron Einar Gunnarsson á móti Frakklandi 27. maí 2012 (vináttuleikur)
  • 23 ára - 1 mánaða og 8 daga
  • Aron Einar Gunnarsson á móti Svíþjóð 30. maí 2012 (vináttuleikur)
  • 23 ára - 3 mánaða og 24 daga
  • Aron Einar Gunnarsson á móti Færeyjum 15. ágúst 2012 (vináttuleikur)
  • 23 ára - 4 mánaða og 16 daga
  • Aron Einar Gunnarsson á móti Noregi 7. september 2012 (Undankeppni HM)
  • 23 ára - 4 mánaða og 20 daga
  • Aron Einar Gunnarsson á móti Kýpur 11. september 2012 (Undankeppni HM)
  • 23 ára - 4 mánaða og 29 daga
  • Gylfi Þór Sigurðsson á móti Rúslandi 6. febrúar 2013 (vináttuleikur)
  • 23 ára - 5 mánaða
  • Kolbeinn Sigþórsson á móti Færeyjum 14. ágúst 2013 (vináttuleikur)
  • 23 ára - 5 mánaða og 20 daga
  • Aron Einar Gunnarsson á móti Albaníu 12. október 2012 (Undankeppni HM)



Fleiri fréttir

Sjá meira


×