Chelsea og Brentford gerðu markalaust jafntefli í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Chelsea átti möguleika að nálgast Notttingham Forest í þriðja sætinu með sigri og gæti nú missti Manchester City upp fyrir sig seinna í dag.
City er tveimur stigum á eftir Chelsea en er að fara að spila við nágranna sína í Manchester United.
Chelsea náði ekki að fylgja eftir sigri í öðrum Lundúnaslag á móti Tottenham í vikunni.
Chelsea fékk betri færi framan af leiknum en fyrri hálfleiknum var annars mjög rólegur.
Brentford féll aftarlega á völlinn og Chelsea gekk illa að búa eitthvað til. Skyndisóknir Brentford sköpuðu alltaf smá hættu.
Brentford reyndi síðan að sækja meira í seinni hálfleiknum á meðan að Chelsea gaf aeðins eftir.
Robert Sánchez varði vel frá Bryan Mbeumo í besta færi hálfleiksins.
Brenford tókst ekki að skora sigurmark og vinna langþráðan sigur á Chelsea. Brentford hefur ekki unnið nágranna sína í efstu deild frá 1938.