Körfubolti

Goð­sögnin Popo­vich hættur í þjálfun

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Mun ekki stýra liði San Antonio Spurs á næstu leiktíð og raunar aldrei aftur.
Mun ekki stýra liði San Antonio Spurs á næstu leiktíð og raunar aldrei aftur. Alex Goodlett/Getty Images

Körfuknattleiksþjálfarinn Gregg Popovich er hættur í þjálfun eftir 29 tímabil með San Antonio Spurs í NBA-deildinni. Enginn þjálfari í sögu deildarinnar hefur unnið jafn marga leiki og Popovich.

Popovich er orðinn 76 ára gamall og hefur verið heilsulítill undanfarna mánuði. Hann fékk heilablóðfall í nóvember á síðasta ári og í febrúar staðfesti Spurs að hann myndi ekki snúa aftur á hliðarlínuna á þessari leiktíð.

Nú hefur verið staðfest að Popovich muni stíga til hliðar sem þjálfari liðsins en hann hefur sinnt því starfi í nærri þrjá áratugi og fimm sinnum leitt liðið til sigurs. Fyrir afrek sín var hann tekinn inn í Heiðurshöll körfuboltans í Bandaríkjunum.

„Þó ást mín og ástríða á leiknum sé sú sama hef ég ákveðið að það sé kominn tími til að stíga til hliðar sem þjálfari liðsins,“ sagði Popovich á sinn einstaka máta þegar ákvörðunin var tilkynnt. Hann verður þó áfram á mála hjá Spurs, nú sem forseti félagsins.

Þrátt fyrir slakan árangur á yfirstandandi tímabili er framtíðin björt hjá Spurs enda með einn efnilegasta leikmann NBA-deildarinnar í Victor Wembanyama.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×