

Lögreglumál
Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.

Gekk berserksgang í Skeifunni
70 mál komu á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt og voru allar fangageymslur á lögreglustöðinni á Hverfisgötu fullar aðra nóttina í röð.

Veittist að starfsfólki slysadeildar
50 mál komu á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt og eru allar fangageymslur fullar nú í morgunsárið.

Leita ökumanns sem ók á gangandi vegfarenda
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns sem ók bifreið á gangandi vegfaranda á Víkurvegi í Grafarvogi, rétt við bensínstöð N1, um eða eftir kl. 17 síðastliðinn miðvikudag.

Þungt haldinn eftir að hafa fallið út úr leigubíl á ferð í Reykjanesbæ
Samband hefur náðst við foreldra mannsins í Kína en hann liggur þungt haldinn og meðvitundarlaus á Landspítalanum.

Börðu húsráðanda með hafnaboltakylfu
Tveir karlar og kona voru handtekin í nótt, grunuð um alvarlega líkamsárás.

Dópaður unglingur gaf ranga kennitölu undir stýri
Töluverð ölvun og annarlegt ástand einkenndi nóttina hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Ógnuðu 14 ára drengjum með eggvopni
Par í annarlegu ástandi heimtaði símana af þremur piltum sem leið áttu um Breiðholt í gærkvöldi.

Rannsókn lögreglu á skammbyssumálinu í Hafnarfirði að ljúka
Að minnsta kosti þrír menn hafa verið handteknir í tengslum við málið en enginn hefur sætt gæsluvarðhaldi vegna þess.

Magnús í sex mánaða nálgunarbann
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur ákvarðað að Magnús Jónsson megi hvorki nálgast né hafa samband við fyrrverandi sambýliskonu sína, Hönnu Kristínu Skaftadóttur, í sex mánuði.

Með svo þungt hlass á kerru að bíllinn lyftist að aftan
Hafði timburbúntinu verið staflað á kerru sem var í eftirdragi pallbíls. Var ökumaðurinn á leið úr byggingarverslun á Selfossi. Var búntið svo afturþungt að þegar ýtt var á endann á því lyftist bifreiðin að aftan.

Hótuðu að setja kynlífsmyndbönd á YouTube
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitaði liðsinnis Europol og bandarísku alríkislögreglunnar FBI á síðasta ári vegna nokkurra fjárkúgunarmála.

Grunaður um líkamsárás og heimilisofbeldi
Karlmaður var handtekinn í heimahúsi í Grafarholti um klukkan 21 í gærkvöldi.

Stolið úr sjúkra- og lögreglubílum
Fjöldi eftirlitsmyndavéla í miðborginni hefur rúmlega tvöfaldast frá því í janúar. Yfirlögregluþjónn segir vélarnar nýtast á hverjum degi. Einn tilgangur myndavélanna er að vakta lögreglubíla og neyðarbíla sem fá ekki að vera í friði þegar þeir eru í útköllum.

Lögregla lét til skarar skríða í umfangsmiklu fíkniefnamáli
Sérsveitarmenn og óeinkennisklæddir lögreglumenn tóku þátt í aðgerðunum.

Minna um bílstuldi í ár
Tilkynningum um þjófnað á ökutækjum og nytjastuldi til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur fækkað milli ára.

Lét reiði sína í ljós með því að búa til stólafjall
Aðalsteinn segir að maðurinn hafi ekki látið þar við sitja heldur hafi hann einnig náð að festa hjól við stólafjallið.

Heimatilbúin sprengja og skotvopn fundust í Hafnarfirði í gær
Skrifstofubygging var rýmd í Hafnarfirði í gær eftir að heimatilbúin sprengja og skotvopn fundust í íbúð leigjanda í húsinu.

Maður hótaði að skjóta fólk í Hafnarfirði
Sérsveit lögreglu var send, ásamt lögreglu og slökkviliði, að skrifstofuhúsnæði við Cuxhavengötu í Hafnarfirði á öðrum tímaum í dag.

Björgunarsveitin enn að störfum
Í kringum fimmtíu björgunarsveitarmenn leita nú að Nika Begadas, 22 ára hælisleitanda frá Georgíu sem féll í Gullfoss á miðvikudag.

Maður handtekinn grunaður um íkveikju
Búið er að handtaka manninn sem grunaður er um að hafa kveikt í bíl í gær fyrir utan Vog í Grafarvogi að því er fram kemur í frétt RÚV.

Akstur undir áhrifum án ökuréttinda og ótryggðir bílar
Umferðar- og fíkniefnabrot voru áberandi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu seinnipart gærdags og í nótt.

Mikil fjölgun innbrota í sumarbústaði
Það sem af er ári hafa átta innbrot verið framin í bústaði á Vesturlandi, samkvæmt upplýsingum frá Lögreglustjóranum á Vesturlandi.

Fótboltaforeldrar með börnin í skottinu í Vestmannaeyjum
Slíkt athæfi er að sjálfsögðu algerlega óboðlegt og stórhættulegt og eflaust ekkert foreldri sem myndi samþykkja slíka meðferð á sínu barni.

Sektir vegna notkunar farsíma undir stýri hækka verulega
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið vinnur nú að því að endurskoða sektir vegna farsímanotkunar undir stýri.

Minnst fjórir ökumenn án réttinda voru stöðvaðir í nótt
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt mann í Kópavogi sem grunaður er um heimilisofbeldi.


Alvarlega slasaður eftir bílveltu við Bláfjallaafleggjara
Alvarlegt bílslys varð vestan megin við Bláfjallaafleggjarann á Suðurlandsvegi í morgun og var maður fluttur alvarlega slasaður á slysadeild. Kallað var til sjúkrabíls og lögreglu klukkan 09.23. Maðurinn var einn í bílnum en bílinn fór nokkrar veltur að sögn Þórðar Bogasonar, varðstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

Kærir tvo lögreglumenn vegna framgöngu þeirra við handtöku sína
Karlmaður á fertugsaldri, sem var í fyrradag dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir tilraun til líkamsárásar og brot gegn valdstjórninni, hefur kært tvo lögreglumenn vegna framgöngu þeirra við handtöku hans.

Fannst vörurnar of dýrar svo hún stal þeim
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók um klukkan hálfsjö í gærkvöldi konu vegna þjófnaðar í verslun í Smáralind.

Dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumenn með hnífi
Maðurinn elti lögreglumanninn inn í stofu á heimilinu með hnífinn á lofti, sveiflaði hnífnum í átt að honum og gerði tilraun til að stinga hann.